Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir dóm Mannréttindadómstóls Evrópu breyta engu um stöðu Sigríðar Á. Andersen, dómsmálaráðherra. Frá þessu er greint á RÚV í dag.
Í frétt RÚV segir hann starf Landsréttar ekki vera í uppnámi þar sem dómurinn hafi ekki bindandi niðurstöðu „nema að því leyti að íslenska ríkið þarf að greiða bætur.“
Eins og fram hefur komið í fréttum þá tapaði Ísland Landsréttarmálinu fyrir Mannréttindadómstólnum en Ísland braut gegn 6. grein mannréttindasáttmála Evrópu sem fjallar um rétt til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi í máli gegn manni sem dæmdur var í 17 mánaða fangelsi í Landsrétti.
Ósammála niðurstöðunni
Birgir segir í samtali við RÚV að niðurstaða meirihluta dómsins virðist í meginatriðum vera á sömu forsendum og dómur Hæstaréttar frá því í desember. „Ég segi fyrir mitt leyti að ég er jafn ósammála þeirri niðurstöðu og ég var niðurstöðu Hæstaréttar.“ Hann vekur jafnframt athygli á sameiginlegu séráliti tveggja dómara við mannréttindadómstólinn þar sem komist sé að þveröfugri niðurstöðu og aðferðarfræði meirihluta dómsins gagnrýnd.
Birgir telur að dómurinn kalli á áframhaldandi umræður um hvernig eigi að haga skipan dómara. Starf Landsréttar sé ekki í uppnámi. „Hann hefur ekki bindandi niðurstöðu nema að því leyti að íslenska ríkið þarf að borga bætur.“ Birgir segist jafnframt telja að dómur MDE breyti engu um stöðu Sigríðar. „Hún hefur gert grein fyrir sínum skoðunum og afstöðu í þessu og staðið af sér vantraust vegna þessa máls.“
Helga Vala Helgadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, sagði aftur á móti í samtali við Kjarnann í morgun að hún teldi að Sigríður yrði að segja af sér strax í dag.