Hæstiréttur bregst við niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu

Hæstiréttur spyr um hvort málsaðilar ætli að fara fram á ómerkingu dóma Landsréttar.

img_2952_raw_1807130229_10016405946_o.jpg
Auglýsing

Hæstirétt­ur Íslands mun í ljósi dóms Mann­rétt­inda­­dóm­stóls Evr­­ópu spyrja aðila allra mála, sem tek­in voru fyr­ir af ein­hverj­um þeirra fjög­­urra dóm­­ara sem voru ekki á upp­­haf­­leg­um 15 manna lista hæf­is­­nefnd­ar um skip­an dóm­­ara við Lands­rétt, að því hvort þeir muni í ljósi dóms MDE fara fram á að dóm­ur Lands­rétt­ar verði ómerkt­­ur.

Þetta kem­ur fram á vef Hæsta­rétt­­ar.  

Einnig segir á vefnum að slíkri fyr­ir­­spurn hafi þegar verið beint til aðila máls Glitn­is Holdco gegn Stund­inni og Reykja­vík Media, vegna lög­banns­máls­ins svo­nefnda, en Ragn­heiður Braga­dótt­ir var einn dóm­­ar­anna sem kváðu upp Lands­rétt­­ar­­dóm í því máli.

Auglýsing

Orð­rétt segir á vef Hæsta­rétt­ar:

„Sam­kvæmt dag­skrá Hæsta­réttar er ráð­gert að mál nr. 29/2018, Glitnir Holdco ehf. gegn Útgáfu­fé­lag­inu Stund­inni ehf. og Reykja­vík Media ehf., verði munn­lega flutt í þing­haldi föstu­dag­inn 15. mars nk. Er þar áfrýjað dómi Lands­réttar 5. októ­ber 2018, en meðal dóm­ara, sem áttu hlut að úrlausn máls­ins, var lands­rétt­ar­dóm­ar­inn Ragn­heiður Braga­dótt­ir. Sem kunn­ugt er gekk 12. þessa mán­aðar dómur í Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evr­ópu í máli nr. 26374/18, Guð­mundur Andri Ást­ráðs­son gegn Ísland­i.Þar var því slegið föstu að rang­lega hafi verið staðið að skipun Arn­fríðar Ein­ars­dóttur í emb­ætti lands­rétt­ar­dóm­ara með þeim afleið­ingum að við með­ferð máls­ins hafi ekki verið full­nægt því skil­yrði 1. mgr. 6. gr. samn­ings um verndun mann­rétt­inda og mann­frelsis að skipan dóm­stóls skuli ákveðin með lög­um. Sömu aðstæður og byggt var að þessu leyti á í dóm­inum eiga við um lands­rétt­ar­dóm­ar­ann Ragn­heiði Braga­dótt­ur. 

Af fram­an­greindu til­efni beinir Hæsti­réttur hér með þeirri fyr­ir­spurn til aðila máls nr. 29/2018 hvort þeir hafi annar eða báðir í hyggju að krefj­ast þess að dómur Lands­réttar verði ómerktur af áður­nefndum ástæð­um. Verði slík krafa höfð uppi telur Hæsti­rétt­ur, í ljósi þess sem opin­ber­lega hefur komið fram um að íslenska ríkið hafi til athug­unar að neyta heim­ildar í 43. gr. fyrr­greinds samn­ings til að óska eftir að máli nr. 27374/18 verði vísað til yfir­deildar mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins, óhjá­kvæmi­legt að fresta munn­legum flutn­ingi máls nr. 29/2018 um óákveð­inn tíma þar til end­an­leg nið­ur­staða fæst um þetta efni. Verði á hinn bóg­inn engin slík krafa gerð mun málið koma til munn­legs flutn­ings á áður boð­uðum tíma. Í ljósi aðstæðna er óskað eftir svörum við þess­ari fyr­ir­spurn fyrir kl. 16 í dag.

Áfrýj­and­inn Glitnir Holdco ehf. og stefndu, Stundin ehf. og Reykja­vík Media ehf., hafa til­kynnt að þeir muni ekki krefj­ast þess fyrir Hæsta­rétti að dómur Lands­réttar verði ómerktur af ofan­greindum ástæð­um. Hefur Hæsti­réttur því í sam­ræmi við fram­an­greint ákveðið að munn­legur flutn­ingur máls nr. 29/2018 fari fram á áður boð­uðum tíma föstu­dag­inn 15. mars nk. Sams konar erindi verður beint til aðila ann­arra dóms­mála fyrir Hæsta­rétti þar sem eins stendur á um.“ 

Hæstirétt­ur Íslands seg­ir að með dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu hafi því verið slegið föstu að rang­­lega hafi verið staðið að skip­un Arn­­fríðar Ein­­ar­s­dótt­ur í emb­ætti lands­rétt­­ar­­dóm­­ara með þeim af­­leið­ing­um að við með­ferð máls­ins „hafi ekki verið full­nægt því skil­yrði 1. mgr. 6. gr. samn­ings um vernd­un mann­rétt­inda og mann­frels­is að skip­an dóm­stóls skuli ákveðin með lög­­­um.“

Dóm­arar við Lands­rétt, 15 tals­ins, hafa ákveðið að kveða ekki upp neina dóma á meðan óvissa er uppi. Næstu skref í mál­inu eru nú metin af stjórn­völd­um, eins og kunn­ugt er. 

Sig­ríður Á. And­er­sen sagði af sér í dag sem dóms­mála­ráð­herra, en rík­is­ráðs­fundur hefur verið boð­aður á morgun klukkan 16:00, þar sem skipað verður í emb­ætti dóms­mála­ráð­herra á nýjan leik.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent