Hryðjuverk í Nýja Sjálandi – Tugir látnir

49 manns hafa látist eftir skotárás í Christchurch í Nýja Sjálandi í nótt. Maður á þrítugsaldri sem aðhyllist öfga-hægri skoðanir hefur verið handtekinn.

Skotárás í Christchurch, Nýja Sjálandi
Auglýsing

Fjör­tíu og níu manns hafa lát­ist eftir skotárásir í tveimur moskum í borg­inni Christchurch í Nýja Sjá­landi í nótt. Sam­kvæmt frétt BBC hafa að minnsta kosti 20 manns særst til við­bót­ar.

Hund­ruð voru í mosk­unum þegar árás­irnar voru gerð­ar. Vitni segja árás­ar­menn hafa skotið á það sem fyrir þeim var og flúið áður en við­bragðs­að­ilar komu á stað­inn.

Maður á þrí­tugs­aldri hefur verið hand­tek­inn og ákærður fyrir morð og mun vera leiddur fyrir dóm­ara á sunnu­dag­inn. Ástr­alski for­sæt­is­ráð­herrann, Scott Morri­son, segir að meintur árás­armaður sé ástr­alskur rík­is­borg­ari og „öfga-hægri hryðju­verka­mað­ur“.

Auglýsing

Auk hans hafa tveir menn og ein kona verið tekin hönd­um, sam­kvæmt lög­reglu­stjór­an­um, Mike Bush. Hann segir að eitt þeirra hafi þó ekki verið bendlað við atvikið en lög­reglan sé að vinna í því að finna út hvort tengsl séu milli hinna tveggja.

Ekk­ert þeirra sem hafa verið hand­tekin voru á lista yfir­valda yfir grun­aða hryðju­verka­menn eða lík­lega til grimmd­ar­verka.

For­sæt­is­ráð­herra Nýja Sjá­lands, Jacinda Ardern, segir ekki hægt að lýsa árás­unum öðru­vísi en sem hryðju­verk­um. 

Sam­kvæmt vef Guar­dian byrj­aði allt í Masjid Al Noor mosk­unni í mið­borg­inni klukkan 13:40 að stað­ar­tíma. Þangað réð­ist inn maður vopn­aður byssu og skaut á alla sem fyrir honum urðu. Skömmu síðar var greint frá skotárás í annarri mosku í borg­inni. Lög­reglan greindi frá því á blaða­manna­fundi í nótt að nokkrir bílar fullir af sprengjum hafi fund­ist í borg­inni, en sprengj­urnar hafi allar verið aftengd­ar.

For­sæt­is­ráð­herr­ann ávarp­aði þjóð­ina í nótt. Hún sagði mörg fórn­ar­lambanna mögu­lega vera inn­flytj­endur í land­inu, jafn­vel flótta­menn. Þeir hafi valið að gera Nýja Sjá­land að heima­landi sínu, og Nýja Sjá­land sé þeirra heima­land. Árás­ar­menn­irnir sem ákváðu að beita ofbeldi af þessu tagi séu hins vegar ekki Nýsjá­lend­ing­ar. Þannig hegðun sé ekki liðin í Nýja Sjá­landi. Eftir ávarpið fór hún á fund rík­is­stjórnar sinnar og örygg­is­stofn­ana í Well­ington.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent