Breska þingið samþykkir að óska eftir frestun

Breska þingið samþykkti í gær að óska eftir frestun útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Breska þingið hefur í tvígang fellt Brexit-samning Theresu May forsætisráðherra en May hyggst leggja þriðja samninginn fyrir þingið á næstu dögum.

Theresa May
Theresa May
Auglýsing

Neðri deild breska þings­ins sam­þykkti í gær til­lögu um að óska eftir að útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu yrði frestað. ­Út­göngu­dagur Breta er settur 29. mars næst­kom­andi. Ther­es­a May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands mun því í þriðja sinna leggja útgöngu­samn­ing fyrir breska þingið á næstu dögum og í kjöl­farið óska eftir frest­un. Frá þessu er greint á vef BBC.

Sam­þykktu að hafna samn­ings­lausri útgöngu

Á þriðju­dag­inn hafn­aði breska þingið í annað sinn Brex­it-­samn­ing Ther­esu May um hvernig útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu ætti að vera hátt­að. Á mið­viku­dag­inn lagð­i Ma­y ­síðan fram til­lögu um að þingið hafn­aði útgöngu úr Evr­ópu­sam­band­inu án samn­ings þann 29. mar­s næst­kom­andi en héldi opnum þeim mögu­leika að Bret­land gengi úr sam­band­inu án samn­ings síð­ar. 

Áður en kosið var um til­lögu May sam­þykkti þingið breyt­ing­ar­til­lögu um að hafna því að Bret­land gengi nokkurn tíma úr Evr­ópu­sam­band­inu án samn­ings. Sú breyt­ing­ar­til­lagan var síðan sam­þykkt af þing­inu með 43 atkvæðum en sam­kvæmt umfjöll­un BBC er það er þó ekki laga­lega bind­andi kosn­ing. ­For­sæt­is­ráð­herr­ann lagði áherslu á það eftir atkvæða­greiðsl­una og sagði að sam­kvæmt gild­andi lögum Bret­lands og Evr­ópu­sam­bands­ins gengi landið úr ESB án samn­ings „nema eitt­hvað annað yrði ákveð­ið“. 

Auglýsing

Í gær sam­þykkti síðan neðri deild þings­ins til­lögu um að leita á náðir Evr­ópu­sam­bands­ins um frestun útgöng­u. ­Til­lagan var sam­þykkt með 412 atkvæðum gegn 202.  

Þriðja atkvæða­greiðslan um samn­ing í næstu viku

Þó að þingið hafi nú tvisvar kol­fellt Brex­it-­samn­ing for­sæt­is­ráð­herr­ans þá boð­ar­ Ma­y ­þriðju atkvæða­greiðsl­una um nýjan samn­ing í næstu viku. Sam­kvæmt BBC vill hún leggja nýjan samn­ing fyrir þingið sem fyrst til að að freista þess að þurfa ekki að fresta útgöngu enn frek­ar. May segir að ef þing­deildin sam­þykki samn­ing­inn eigi síðar en á mið­viku­dag­inn kemur ætli hún að óska eftir því að útgöng­unni verði frestað til 30. júní næst­kom­andi. Ef þingið fellur hins vegar samn­ing­inn þarf rík­is­stjórnin að fara fram á að fresta útgöng­unni til lengri tíma. Ma­y var­aði því þing­heim­inn við í gær að ef samn­ing­ur­inn er ekki sam­þykktur í næstu viku, þá gætu Bretar þurft að taka þátt í kosn­ingum til Evr­ópu­þings­ins sem eiga að fara fram í maí. 

Öll hin aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bans­ins þurfa það sam­þykkja beiðni Bret­lands um að fresta útgöng­unni úr Evr­ópu­sam­band­in­u. Don­ald Tusk, for­seti leið­toga­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins, sagði í gær að sam­bandið myndi sam­þykkja að Brex­it yrði frestað í langan tíma ef Bretar teldu það nauð­syn­legt til að ná sam­stöðu um útgöngu. Aðrir leið­togar sam­band­ins hafa þó varað við að að þeir geti ekki fall­ist á beiðni um að fresta Brex­it ­nema breska þingið kom­ast að sam­komu­lagi um hvað þeir vilja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent