Kaupthinking tilnefnd til Blaðamannaverðlauna Íslands

Bók eftir ritstjóra Kjarnans er á meðal þeirra blaðamannaverka sem hljóta tilnefningu til Blaðamannaverðlauna Íslands í ár. Verðlaunin verða veitt eftir viku.

Mynd: Samsett RÚV
Mynd: Samsett RÚV
Auglýsing

Bókin Kaupt­hink­ing - Bank­inn sem átti sig sjálf­ur, eftir Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, er til­nefnd til Blaða­manna­verð­launa Íslands fyrir árið 2018, en til­nefn­ing­arnar voru birtar í nótt.

Bókin byggir á tíu ára vinnu höf­undar og á miklu magni trún­að­ar- og rann­sókn­ar­gagna, íslenskum og erlend­um, sem hann fékk aðgang að snemma á síð­asta ári. Á meðal þeirra gagna eru, ógrynni tölvu­pósta, frum­gögn innan úr Kaup­þingi, yfir­heyrslur yfir sak­born­ingum og vitn­um, grein­ar­gerðir rann­sak­enda í risa­vöxnum málum og hlust­anir í síma sem flestar áttu sér ann­að­hvort stað um það leyti sem skýrsla rann­sókn­ar­nefndar Alþingis birti skýrslu sína í apríl 2010 eða um mán­uði síðar í kjöl­far þess að helstu stjórn­endur Kaup­þings voru hnepptir í gæslu­varð­hald vegna gruns um stór­fellda brota­hegð­un. Flestir þeirra hlutu síðar fang­els­is­dóma fyrir efna­hags­brot sem eiga sér enga hlið­stæðu í Íslands­sög­unni.

Verð­launin verða veitt næst­kom­andi föstu­dag í Pressu­klúbbn­um, félags­heim­ili blaða­manna í Síðu­múla 23 næst­kom­andi föstu­dag, kl 17:00.

Auglýsing

Þrír eru til­nefndir í hverjum flokki verð­laun­anna en alls er um fjóra flokka að ræða.

Hér að neðan er hægt að sjá til­nefn­ingar í hverjum flokki fyrir sig og rök­stuðn­ing dóm­nefndar fyrir til­nefn­ing­un­um.

Við­tal árs­ins

Jóhann Páll Jóhanns­son, Stund­inni

Fyrir við­tal við Báru Hall­dórs­dóttur sem steig fram í kjöl­far þess að hafa tekið upp hat­urs­orð­ræðu þing­manna á Klaust­ur­bar og sent fjöl­miðlum til úrvinnslu.

Milla Ósk Magn­ús­dótt­ir, RÚV

Fyrir við­tal við hjónin Stefán Þór Gunn­ars­son og Elísu Rós Jóns­dóttur sem misstu son sinn vegna ofneyslu fíkni­efna. Hjónin lýsa eigin úrræða­leysi og áfall­inu sem fylgdi and­lát­inu.

Ragn­heiður Linn­et, Mann­lífi

Fyrir við­tal við Mer­hawit Bar­ya­mik­ael Tes­fasla­se, ekkju plast­barka­þeg­ans, Andemariam Beyene, um aðdrag­anda ígræðsl­unnar og hvernig líf fjöl­skyld­unnar umturn­að­ist eftir þá örlaga­ríku aðgerð.

Rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins

Freyr Rögn­valds­son og Stein­dór Grétar Jóns­son, Stund­inni

Fyrir umfjöll­un­ina Landið sem auð­menn eiga sem veitir ríka yfir­sýn yfir umfang fyrrum bújarða sem nú eru í eigu inn­lendra og erlendra auð­manna og inn­sýn í hverjir þeir eru.

Helgi Selj­an, RÚV

Fyrir frétta­skýr­ingu um stöðu erlendra verka­manna og sjálf­boða­liða sem hingað koma, búa við bágar aðstæður og eru sviknir um laun.

Ingólfur Bjarni Sig­fús­son, RÚV

Fyrir frétta­skýr­ingu um um vopna­flutn­inga Air Atl­anta og van­höld Sam­göngu­stofu á því að fram­fylgja sátt­málum um vopna­flutn­inga sem Ísland hefur full­gilt.

Umfjöllun árs­ins

Aðal­heiður Ámunda­dótt­ir, Frétta­blað­inu

Fyrir umfjöllun með fréttum og frétta­skýr­ingum um for­sögu, end­ur­upp­töku og eft­ir­mála Guð­mund­ar- og Geir­finns­mála.

Guð­rún Hálf­dán­ar­dótt­ir, Morg­un­blað­in­u/Mbl.is

Fyrir greina­flokk­inn Gætt að geð­heil­brigði um úrræði og úrræða­leysi þegar kemur að því að hjálpa fólki sem glímir við geð­sjúk­dóma og/eða fíkn.

Hólm­fríður Helga Sig­urð­ar­dótt­ir, Stund­inni

Fyrir umfjöllun með frá­sögnum átta kvenna sem opin­bera bit­leysi nálg­un­ar­banns sem úrræðis í heim­il­is­of­beld­is­mál­um.

Blaða­manna­verð­laun árs­ins

Sig­ríður Hall­dórs­dótt­ir, RÚV

Fyrir umfjöllun um óábyrga notkun plasts, þar sem sýnt er með slá­andi hætti hvernig það mengar umhverf­ið, neyslu­vatn okkar og mat­væli.

Vikt­oría Her­manns­dóttir og Þór­hildur Ólafs­dótt­ir, RÚV

Fyrir útvarps­þátta­röð­ina Kverka­tak þar sem lýst er birt­ing­ar­myndum heim­il­is­of­beldis frá sjón­ar­horni þolenda, aðstand­enda þeirra og sér­fræð­inga.

Þórður Snær Júl­í­us­son, Kjarn­anum

Fyrir bók­ina Kaupt­hink­ing sem dregur fram skýra mynd af hug­ar­fari og ólög­legum fjár­mála­gjörn­ingum innan Kaup­þings í aðdrag­anda banka­hruns­ins og afleið­ingum þeirra.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent