Bókin Kaupthinking - Bankinn sem átti sig sjálfur, eftir Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarnans, er tilnefnd til Blaðamannaverðlauna Íslands fyrir árið 2018, en tilnefningarnar voru birtar í nótt.
Bókin byggir á tíu ára vinnu höfundar og á miklu magni trúnaðar- og rannsóknargagna, íslenskum og erlendum, sem hann fékk aðgang að snemma á síðasta ári. Á meðal þeirra gagna eru, ógrynni tölvupósta, frumgögn innan úr Kaupþingi, yfirheyrslur yfir sakborningum og vitnum, greinargerðir rannsakenda í risavöxnum málum og hlustanir í síma sem flestar áttu sér annaðhvort stað um það leyti sem skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis birti skýrslu sína í apríl 2010 eða um mánuði síðar í kjölfar þess að helstu stjórnendur Kaupþings voru hnepptir í gæsluvarðhald vegna gruns um stórfellda brotahegðun. Flestir þeirra hlutu síðar fangelsisdóma fyrir efnahagsbrot sem eiga sér enga hliðstæðu í Íslandssögunni.
Verðlaunin verða veitt næstkomandi föstudag í Pressuklúbbnum, félagsheimili blaðamanna í Síðumúla 23 næstkomandi föstudag, kl 17:00.
Þrír eru tilnefndir í hverjum flokki verðlaunanna en alls er um fjóra flokka að ræða.
Hér að neðan er hægt að sjá tilnefningar í hverjum flokki fyrir sig og rökstuðning dómnefndar fyrir tilnefningunum.
Viðtal ársins
Jóhann Páll Jóhannsson, Stundinni
Fyrir viðtal við Báru Halldórsdóttur sem steig fram í kjölfar þess að hafa tekið upp hatursorðræðu þingmanna á Klausturbar og sent fjölmiðlum til úrvinnslu.
Milla Ósk Magnúsdóttir, RÚV
Fyrir viðtal við hjónin Stefán Þór Gunnarsson og Elísu Rós Jónsdóttur sem misstu son sinn vegna ofneyslu fíkniefna. Hjónin lýsa eigin úrræðaleysi og áfallinu sem fylgdi andlátinu.
Ragnheiður Linnet, Mannlífi
Fyrir viðtal við Merhawit Baryamikael Tesfaslase, ekkju plastbarkaþegans, Andemariam Beyene, um aðdraganda ígræðslunnar og hvernig líf fjölskyldunnar umturnaðist eftir þá örlagaríku aðgerð.
Rannsóknarblaðamennska ársins
Freyr Rögnvaldsson og Steindór Grétar Jónsson, Stundinni
Fyrir umfjöllunina Landið sem auðmenn eiga sem veitir ríka yfirsýn yfir umfang fyrrum bújarða sem nú eru í eigu innlendra og erlendra auðmanna og innsýn í hverjir þeir eru.
Helgi Seljan, RÚV
Fyrir fréttaskýringu um stöðu erlendra verkamanna og sjálfboðaliða sem hingað koma, búa við bágar aðstæður og eru sviknir um laun.
Ingólfur Bjarni Sigfússon, RÚV
Fyrir fréttaskýringu um um vopnaflutninga Air Atlanta og vanhöld Samgöngustofu á því að framfylgja sáttmálum um vopnaflutninga sem Ísland hefur fullgilt.
Umfjöllun ársins
Aðalheiður Ámundadóttir, Fréttablaðinu
Fyrir umfjöllun með fréttum og fréttaskýringum um forsögu, endurupptöku og eftirmála Guðmundar- og Geirfinnsmála.
Guðrún Hálfdánardóttir, Morgunblaðinu/Mbl.is
Fyrir greinaflokkinn Gætt að geðheilbrigði um úrræði og úrræðaleysi þegar kemur að því að hjálpa fólki sem glímir við geðsjúkdóma og/eða fíkn.
Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, Stundinni
Fyrir umfjöllun með frásögnum átta kvenna sem opinbera bitleysi nálgunarbanns sem úrræðis í heimilisofbeldismálum.
Blaðamannaverðlaun ársins
Sigríður Halldórsdóttir, RÚV
Fyrir umfjöllun um óábyrga notkun plasts, þar sem sýnt er með sláandi hætti hvernig það mengar umhverfið, neysluvatn okkar og matvæli.
Viktoría Hermannsdóttir og Þórhildur Ólafsdóttir, RÚV
Fyrir útvarpsþáttaröðina Kverkatak þar sem lýst er birtingarmyndum heimilisofbeldis frá sjónarhorni þolenda, aðstandenda þeirra og sérfræðinga.
Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum
Fyrir bókina Kaupthinking sem dregur fram skýra mynd af hugarfari og ólöglegum fjármálagjörningum innan Kaupþings í aðdraganda bankahrunsins og afleiðingum þeirra.