Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, segir að virða eigi rétt fólks til að mótmæla, óháð uppruna, kynþætti eða öðru.
Í færslu á Facebook síðu sinni gerir hann kvartanir þingmanna, núverandi og fyrrverandi, yfir því að fámenn og róleg mótmæli hælisleitenda á Austurvelli hafi staðið yfir undanfarna viku.
„Ekki getur verið að í þessu tilfelli skipti það höfuðmáli í huga þessari þingmanna hverjir standa að mótmælunum? Það er enginn ami af þessum mótmælum. Það er lika merki heilbrigðs lýðræðisríkis að fólk fái að safnast saman í friði og berjast fyrir réttindum sínum og hagsmunum. Skemmst að minnast fjölmennra mótmæla nemenda á Austurvelli síðastliðinn föstudag vegna aðgerðarleysis stjórnvalda í loftlagsmálum, auk fjölmargra baráttufunda sem þar hafa verið haldnir í gegnum tíðina,“ segir Þorsteinn.
Hann segir enn fremur að óþarfi sé að hafa áhyggjur af styttunni af Jóni Sigurðssyni. „Telja þeir meðal annars „ólíðandi“ að mótmælendur séu að „vega að heiðri“ Jóns Sigurðssonar Forseta. Nú hefur Jón verið virkur þátttakandi í hinum ýmsu mótmælum á Austurvelli í gegnum tíðina. Hann hefur klæðst bleikum kjól til stuðnings kynjajafnrétti og álpappír til að mótmæla stóriðju. Það kemur kannski ekki á óvart enda Jón einn þekktasti „mótmælandi“ þjóðarinnar sjálfur.
Það er ekki móðgun við arfleifð okkar sem þjóðar þótt Jón fái tímabundið hlutverk í slíkum mótmælum. Austurvöllur og styttan af Jóni er táknmynd sjálfstæðis- og frelsisbaráttu okkar sem þjóðar. Það er ágætt að muna að rétturinn til að mótmæla er grundvallarréttur sem tryggður er, m.a. í Mannréttindasáttmála Evrópu, sem við ræðum nú í þinginu af öðrum ástæðum.
Við eigum alltaf að virða rétt allra til þess, óháð uppruna, kynþætti eða öðru,“ segir Þorsteinn.