83 prósent Íslendinga eru hlynntir því að launafólk með heildartekjur undir 500 þúsund krónum á mánuði fyrir skatt fái meiri skattalækkun en aðrir. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Alþýðusamband Íslands
Í tilkynningu frá ASÍ segir að athygli veki að stuðningur við slíka skattkerfisbreytingu sé mikill í öllum aldurs- og tekjuhópum þó vissulega sé hann mestur hjá þeim tekjulægstu.
„Þessi niðurstaða rímar vel við þær hugmyndir um skattkerfisbreytingar sem ASÍ kynnti í lok janúar. Markmið þeirra tillagna var að létta byrðum af fólki með lágar- og millitekjur, auka jafnrétti og koma á sanngjarnri skattheimtu. Þegar ríkisstjórnin kynnti sínar skattalækkunar hugmyndir nokkrum vikum seinna kom í ljós að sama skattalækkun átti að ganga upp allan tekjustigann, þ.e. það skipti ekki máli hvort einstaklingurinn væri með 300 þúsund krónur eða 2,3 milljónir í mánaðartekjur, allir fengju það sama,“ segir í tilkynningunni.
Könnun Gallup var gerð 1. til 12. mars á þessu ári en um netkönnuna var að ræða og var úrtakið 1440 manns af landinu öllu. Svarhlutfall var 57,1 prósent.