Guðbrandur Einarsson hefur sagt af sér sem formaður LÍV. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Guðbrandur sendi frá sér í gær en birt var í dag.
Í henni segir hann að þeirri stöðu hafi hann gengt í hartnær 6 ár af auðmýkt og þakklæti fyrir að hafa verið trúað fyrir þessu mikilvæga verkefni. „Þessi staða hefur gefið mér margt og veitt mér tækifæri til að takast á við ný verkefni s.s. að eiga mikil og náin samskipti við systursamtök á Norðurlöndum og kynnast fólki sem þar er í forsvari. Sú reynsla hefur kennt mér margt sem ég mun búa að,“ segir hann.
„Þær breytingar hafa hins vegar orðið að það stéttarfélag sem ég hef verið í forsvari fyrir undanfarin 21 ár, sameinast VR þann 1. apríl og við það færist samningsumboð þess félags yfir til VR í kjölfarið. Þá er sú staða uppi að LÍV og VR hafa ekki átt samleið við gerð kjarasamnings, þrátt fyrir að hafa lagt fram sameiginlega kröfugerð.
Verulegur meiningarmunur er á milli mín og forsvarsmanna VR með hvaða hætti skuli nálgast kjarasamningsgerð og þar sem ég hef ákveðið að þyggja ekki starf hjá VR, þrátt fyrir boð þar um, tel ég eðlilegt að ég stigi úr stóli formanns Landssambands íslenskra verslunarmanna á þessum tímapunkti,“ segi Guðbrandur jafnframt.
Hann segist vera fullur þakklætis fyrir þann tíma sem hann hefur setið í stjórn LÍV sem nú telur tvo áratugi og kveður þennan vettvang fullur auðmýktar. „Ég vil óska stjórn LÍV velfarnaðar í störfum sínum fyrir íslenskt launafólk og þakka þeim einstaklingum sem ég hef fengið að vinna með á þessum vettvangi fyrir einstök og góð kynni.“