Vextir Seðlabankans enn óbreyttir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum.

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bank­ans óbreytt­um. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lán­um, verða því áfram 4,5 pró­sent.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bank­an­um.

Í henni segir jafn­framt að sam­kvæmt nýlega birtum þjóð­hags­reikn­ingum hafi hægt nokkuð á hag­vexti á seinni hluta síð­asta árs frá því sem hann hafði verið á fyrri hluta árs­ins. Hag­vöxtur var 4,6 pró­sent á árinu öllu en í febr­ú­ar­spá sinni hafði Seðla­bank­inn gert ráð fyrir að hann yrði 4,3 pró­sent. Nýlegar vís­bend­ingar um efna­hags­um­svif og af vinnu­mark­aði bendi til þess að spenna í þjóð­ar­bú­skapnum haldi áfram að minnka.

Auglýsing

Verð­bólga var 3 pró­sent í febr­úar og hefur hjaðnað frá því í des­em­ber síð­ast­liðnum þegar hún mæld­ist 3,7 pró­sent. Vegur þar þyngst að dregið hefur úr áhrifum hækk­unar inn­flutn­ings­verðs vegna geng­is­lækk­unar krón­unnar á haust­mán­uðum síð­asta árs og að fram­lag hús­næðis til verð­bólgu hefur minnk­að. Gengi krón­unnar hefur hækkað um tæp­lega 3 pró­sent frá febr­ú­ar­fundi pen­inga­stefnu­nefnd­ar. Enn er þó lík­legt að verð­bólga auk­ist eitt­hvað fram eftir ári en hvað verður er háð nið­ur­stöðu kjara­samn­inga sem ekki liggur fyr­ir.

„Lang­tíma­verð­bólgu­vænt­ingar heim­ila og fyr­ir­tækja hafa hækkað en verð­bólgu­á­lag á skulda­bréfa­mark­aði lækk­að. Á alla mæli­kvarða eru lang­tíma­verð­bólgu­vænt­ingar enn yfir verð­bólgu­mark­mið­inu. Vænt­ingar um verð­bólgu til skamms tíma hafa lítið breyst frá síð­asta fundi pen­inga­stefnu­nefndar og því er taum­hald pen­inga­stefn­unn­ar, eins og það mælist í raun­vöxtum Seðla­bank­ans, óbreytt frá fyrri fundi.

Pen­inga­stefnan mun á næst­unni ráð­ast af sam­spili minni spennu í þjóð­ar­bú­skapn­um, launa­á­kvarð­ana og þró­unar verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Pen­inga­stefnu­nefnd ítrekar að hún hefur bæði vilja og þau tæki sem þarf til að halda verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­ingum við mark­mið til lengri tíma lit­ið. Það gæti kallað á harð­ara taum­hald pen­inga­stefn­unnar á kom­andi mán­uð­um. Aðrar ákvarð­an­ir, einkum á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­mál­um, muni skipta miklu um hvort svo verður og hafa áhrif á hversu mik­ill fórn­ar­kostn­aður verður í lægra atvinnustigi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent