WOW air óskaði eftir ríkisábyrgð á láni

Skúli Mogensen hefur leitað ásjár stjórnvalda og kannað möguleika á ríkisábyrgð á láni. Lánveitandi WOW air hefur sett ríkisábyrgð sem skilyrði fyrir lánveitingu þar sem ekki er talið að nægjanleg veð sé að hafa í rekstrarfjármunum flugfélagsins sjálf.

wow air
Auglýsing

Skúli Mog­en­sen, stofn­andi og for­stjóri WOW a­ir, leit­að­ist eftir því síð­ustu helgi að rík­is­sjóður veitti flug­fé­lag­inu rík­is­á­byrgð fyrir láni til þess að tryggja rekstur félags­ins til skemmri tíma. Beiðni Skúla var beint að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu en sam­kvæmt heim­ild­um Við­skipta­moggans mun ráðu­neytið ekki hafa orðið við að þeirri beiðn­i. 

Lán­veit­and­i WOW a­ir ­setti rík­is­á­byrgð sem skil­yrði

WOW a­ir hefur und­an­farið átt í miklum lausa­fjár­erf­ið­leik­um. Fyr­ir­tækið hefur ekki greitt mót­fram­lag í líf­eyr­is- og sér­eign­ar­sparnað í þrjá mán­uði. Auk þess skuldar flug­fé­lag­ið Isa­vi­a ógreidd lend­ing­ar­gjöld yfir margra mán­aða skeið. Isa­vi­a ­neitar þó að tjá sig um mál­efni ein­stakra við­skipta­vina og því er ekki vitað hve há skuld­in. Þá herma heim­ild­ir Mark­að­ar­ins að WOW a­ir hafi und­an­farið þurft að hafa ávallt eina flug­vél úr flota félags­ins til­tæka á Kefla­vík­ur­flug­velli ­vegna skil­mála Isaiva. Þá get­i Isa­vi­a ­kyrr­sett vél­ina ef flug­fé­lag­ið ­lendir í greiðslu­erf­ið­leik­um.  

Sam­kvæmt heim­ildum Við­skipta­mogg­ans hefur lán­veit­and­i WOW a­ir ­sett rík­is­á­byrgð sem skil­yrði fyrir lána­fyr­ir­greiðslu þar sem ekki er talið að nægj­an­leg veð sé að hafa í rekstr­ar­fjár­munum félags­ins sjálf. Fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið varð ekki við beiðni flug­fé­lags­ins um rík­is­á­byrgð en í ljósi þess að staða WOW a­ir er metin fall­völt þá fylgj­­­­ast stjórn­völd náið með stöð­unni.

Auglýsing

Líkt og greint hefur verið frá leit­aði Skúli Mog­en­sen til for­svars­manna Icelanda­ir Group í lok síð­asta mán­aðar en stjórn­ Icelanda­ir Group á­kvað þá að ganga ekki til við­ræðna við lággjalda­flug­fé­lagið að sinni. Í umfjöllun Mark­að­ar­ins í dag kemur aftur á móti fram að óform­legar þreif­ingar hafi verið á milli full­trú­a WOW a­ir og Icelanda­ir Group und­an­farna daga um aðkomu síð­ar­nefnda félags­ins að því fyrr­nefnda.   

Ef skulda­bréfa­eig­end­urnir sam­þykkja skil­málana þá fær Skúli frest til apr­íll­oka

Óvissa ríkir um fram­gang við­ræðn­a WOW a­ir og Indigo Partner­s en í lok febr­úar gáfu félögin tvö sér­ mán­að­­ar­frest til við­­bót­ar til að klára við­ræð­urn­ar. Þann 9. mars send­i WOW a­ir ­síðan frá sér til­­kynn­ingu til skulda­bréfa­eig­enda sinna um nýja skil­­mála sem Indigo Partner­s hefur farið fram á að þeir sam­­þykki til að aðkoma þeirra að WOW a­ir ­geti gengið eft­­ir. Í til­kynn­ing­unni kom fram að Indigo hefur hug á að fjár­­­festa allt að 90 millj­­ónir dala, um ell­efu millj­­arða króna, í WOW a­ir. Jafn­framt vilja for­svar­s­­menn Indigo að eig­endur skulda­bréfa­­flokks, sem var gef­inn út í sept­­em­ber í fyrra, sam­­þykki marg­þættar breyt­ingar á skil­­málum hans sem feli í sér að end­­­­ur­heimt­ur þeirra verða bundn­ar rekstr­­­­ar­frammi­­­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins á næstu árum. Þannig geti end­­­­ur­heimt­ur þeirra orðið 50 til 100 pró­­­sent af upp­­­­haf­­­­legu virði bréf­anna. Indigo krafð­ist jafn­framt fleiri breyt­inga á skil­mál­u­m. 

Sam­­­­kvæmt hinum nýju skil­­­málum gæti hlut­ur Skúla Mog­en­sen, stofn­anda og eina eig­anda WOW a­ir, orðið á bil­inu 0 til 100 pró­­­sent allt eft­ir því hvernig fé­lag­inu reiðir af á kom­andi árum. Fjár­­­­­­­fest­ing Indigo mun fela í sér, að hann eign­ist hluta­bréf í fé­lag­inu en veiti því einnig lán með breytirétti sem síð­­­­­ari geti orðið stofn að hluta­fé í fé­lag­inu.

Ef skulda­bréfa­eig­end­urnir sam­þykkja breyt­ing­arnar hef­ur WOW a­ir frest til 29. apríl til þess að ná sam­komu­lagi við Indigo Partner­s. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent