Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, hlaut í dag blaðamannaverðlaun ársins 2018 fyrir bók sína Kaupthinking - bankinn sem átti sig sjálfur - sem fjallar um Kaupþing banka.
Bókin byggir á tíu ára vinnu höfundar og á miklu magni trúnaðar- og rannsóknargagna, íslenskum og erlendum, sem hann fékk aðgang að snemma á síðasta ári. Á meðal þeirra gagna eru, ógrynni tölvupósta, frumgögn innan úr Kaupþingi, yfirheyrslur yfir sakborningum og vitnum, greinargerðir rannsakenda í risavöxnum málum og hlustanir í síma sem flestar áttu sér annaðhvort stað um það leyti sem skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis birti skýrslu sína í apríl 2010 eða um mánuði síðar í kjölfar þess að helstu stjórnendur Kaupþings voru hnepptir í gæsluvarðhald vegna gruns um stórfellda brotahegðun. Flestir þeirra hlutu síðar fangelsisdóma fyrir efnahagsbrot sem eiga sér enga hliðstæðu í Íslandssögunni.
Rökstuðningur dómnefndar verðlaunanna var svohljóðandi:
„Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum, hlýtur Blaðamannaverðlaun ársins 2018 fyrir heildstæða greiningu á hugarfari og ólöglegum fjármálagjörningum í bókinni Kaupthinking – Bankinn sem átti sig sjálfur.
Umfjöllun Þórðar Snæs dregur upp skýra mynd af ósæmilegu háttarlagi þeirra lykilbankamanna sem leiddu Kaupþing frá einkavæðingu að falli árið 2008. Umfjöllunin er afrakstur áralangrar rannsóknar Þórðar á málinu og víðtækrar heimildavinnu úr bæði opinberum og óopinberum gögnum sem hann komst yfir. Vinna hans á sér fáar hliðstæður.
Bókin sýnir hvernig gera má yfirgripsmikla rannsóknarvinnu til margra ára bæði auðlæsilega og skiljanlega. Hún er áþreifanleg heimild um það traust sem blaðamaður getur áunnið sér og þá þekkingu sem myndast þegar hann helgar sig málefni.“
Ragnheiður Linnet, Mannlífi, hlaut verðlaun fyrir viðtal ársins við Merhawit Baryamikael Tesfaslase, ekkju plastbarkaþegans, Andemariam Beyene, um aðdraganda ígræðslunnar og hvernig líf fjölskyldunnar umturnaðist eftir þá örlagaríku aðgerð.
Rökstuðningur dómnefndar var svohljóðandi:
„Ragnheiður Linnet, Mannlífi, hlýtur verðlaunin fyrir viðtal sitt við Merhawit Baryamikael Tesfaslase Hún er ekkja plastbarkaþegans Andemariams Beyene sem var fyrsti maðurinn sem gervibarki var græddur í árið 2011.
Í viðtalinu kynnist lesandinn harmleik fjölskyldunnar. Merhawit lýsir aðdraganda aðgerðarinnar og því þegar hún missti mann sinn í einu stærsta svikamáli sem upp hefur komið í læknavísindum áratugum saman. Málið tengist Íslandi með beinum hætti vegna þess að Andemariam var búsettur hér þegar hann veiktist og því sjúklingur íslenskra lækna.
Merhawit greinir frá því hvernig hún stóð upp réttindalaus með þrjú ung börn eftir andlát Andemariams árið 2014.
Viðtalið er vel skrifað og hjartnæmt. Auk þess að greina frá örlögum Merhawit og barnanna veitir það góða innsýn í málið og það sem aflaga fór bæði vísindalega og siðfræðilega.“
Freyr Rögnvaldsson og Steindór Grétar Jónsson, Stundinni, fyrir umfjöllun ársins, um landið sem auðmenn eiga sem veitir ríka yfirsýn yfir umfang fyrrum bújarða sem nú eru í eigu innlendra og erlendra auðmanna og innsýn í hverjir þeir eru.
Rökstuðningur dómnefndar var svohljóðandi:
„Verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins 2018 hljóta Freyr Rögnvaldsson og Steindór Grétar Jónsson, Stundinni, fyrir umfjöllun sína, Landið sem auðmenn eiga.Í umfjölluninni birtist eignarhald auðfólks á jörðum á Íslandskorti sem nær yfir heila opnu og veitir skýra yfirsýn yfir umfang fyrrum bújarða sem nú eru í eigu innlendra og erlendra auðmanna. Sumir þeirra hafa safnað að sér fjölda jarða og jafnvel keypt upp jarðir á ákveðnum stöðum á landinu. Þá er eignarhald fjölda jarða í félögum sem stundum hvílir leynd yfir.
Í umfjölluninni eru viðtöl við nokkra þeirra sem hvað umsvifamestir hafa verið í jarðakaupum og veita viðtölin innsýn í margbreytilegar ástæður fólks fyrir því að vilja eignast jarðir á Íslandi.
Framlag þeirra Freys og Steindórs veitir mikilvæga yfirsýn yfir umdeilt mál sem hefur verið mikið til umræðu í samfélaginu.“
Aðalheiður Ámundadóttir, Fréttablaðinu, hlaut verðlaun fyrir umfjöllun með fréttum og fréttaskýringum um forsögu, endurupptöku og eftirmála Guðmundar- og Geirfinnsmála.
Rökstuðningur dómnefndar var svohljóðandi:
Verðlaun fyrir umfjöllun ársins hlýtur Aðalheiður Ámundadóttir, Fréttablaðinu, fyrir upplýsandi og greinargóð skrif um Guðmundar- og Geirfinnsmál.
Í umfjöllun sinni um endurupptöku og um leið forsögu Guðmundar- og Geirfinnsmála tekst Aðalheiði að fanga kjarna atburða hverju sinni og setja í samhengi.
Auk upplýsandi frétta af gangi dómsmálsins varpaði Aðalheiður í fréttaskýringum ljósi á sögu mannshvarfanna tveggja 1974, rannsókn þeirra á sínum tíma og aðdraganda þess að málin fengust endurupptekin á síðasta ári. Þá fylgdi hún málinu vel eftir þegar Hæstiréttur hafði fellt sinn dóm með umfjöllun um möguleg eftirmál og möguleikanum á því að mannshvörfin upplýsist á endanum.
Skrif Aðalheiðar einkennast af djúpri þekkingu á flókinni og langri sögu sem hún skilar lesendum á skýran og aðgengilegan máta.“