Ársverðbólga mælist nú 2,9 prósent, samkvæmt nýjum tölum um þróun vísitölu neysluverðs sem Hagstofa Íslands birti í morgun. Það er nánast sama verðbólga og mældist fyrir ári síðan, í mars 2018, þegar hún var 2,8 prósent.
Verðbólgan hækkaði skarpt á síðari hluta ársins 2018 og mældist 3,7 prósent í desember síðastliðnum. Hún hefur hins vegar hjaðnað hratt síðan og er nú undir þremur prósentustigum á ný, en ársverðbólgan mældist síðast undir því marki í október síðastliðnum.
Verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands er 2,5 prósent. Vel hefur gengið á undanförnum árum að halda verðbólgunni undir því markmiði. Verðbólgan fór undir 2,5 prósent markmiðið í febrúar 2014 og hélst þar þangað til í mars í fyrra.
Frá febrúar 2014 hefur verðbólga mælst þrjú prósent eða hérlendis í fjóra mánuði, þ.e. frá nóvember 2018 og fram í febrúar síðastliðinn.
Í frétt Hagstofunnar um hækkum á vísitölu neysluverðs segir að hún hafi hækkað um 0,52 prósent á milli mánaða. Þar skipti mestu að vetrarútsölum sé nú lokið og því hafi verð á fötum og skóm hækkað um 9,5 prósent milli mánaða. Þá hækkaði verð á eldsneyti um 1,8 prósent og flugfargjöld um 5,4 prósent.
Verðbólga hefur áhrif á lán heimila
Þróun verðbólgu skiptir íslensk heimili miklu máli þar sem þorri lána þeirra eru verðtryggð. Það þýðir að þróun verðbólgu hefur áhrif á þróun lána þeirra. Því meiri verðbólga því hærri verðbætur leggjast á lánin, og því meira þarf að greiða til baka af höfuðstól þess.
Í skýrslu sem Íslandsbanki vann og birti í október í fyrra kom fram að 77 prósent heildarskulda íslenskra heimila væru verðtryggðar.
Slík lán hafa verið hagkvæmasti kosturinn sem boðist hefur íslenskum neytendum á undanförnum árum þar sem verðbólga hefur, líkt og áður sagði, að mestu verið við eða undir 2,5 prósent verðbólgumarkmiðum Seðlabanka Íslands síðastliðinn fimm ár.
Samhliða hafa lánskjör batnað umtalsvert, þótt þau séu enn langt frá því að vera á pari við það sem er í boði hjá öðrum þjóðum sem Ísland ber sig saman við. Þannig eru vextir á ódýrustu verðtryggðu lánunum sem bera breytilega vexti nú 2,15 prósent og alls bjóða níu íslenskir lífeyrissjóðir sjóðsfélögum sínum slík lán með vöxtum sem eru undir þremur prósentum.
Verðtryggðir breytilegir vextir hjá bönkunum þremur eru hins vegar á bilinu 3,55 til 3,89 prósent. Ódýrastir hjá ríkisbankanum Landsbanka og dýrastir hjá hinum ríkisbankanum, Íslandsbanka.