Vinnumálastofnun vekur athygli á því að þeir sem hafa starfað hjá WOW air geta sótt um atvinnuleysisbætur á heimasíðu stofnunarinnar. Stofnun hvetur fólk til að hefja umsóknarferlið sem fyrst þar sem atvinnuleysisbætur eru greiddar frá þeim degi sem umsókn berst. Þetta kemur fram í orðsendingu Vinnumálastofnunar til starfsmanna WOW air.
Ef WOW air verður tekið til gjaldþrotaskipta þá þarf fólk að hafa samband við stéttarfélag eða lögmann
Í orðsendingunni kemur fram að á morgun, föstudaginn 29. mars, verður opið á þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar í Kringlunni 1, í Reykjavík og Krossmóum 4 í Reykjanesbæ, á milli klukkan 13 og 16 fyrir starfsfólk WOW air. Þar verða frekari upplýsingar veittar og aðstoðað verður við umsókn um atvinnuleysisbætur fyrir þá sem þess óska. Áætlað er að afgreiðsla umsókna fyrir atvinnuleysisbætur taki fjórar til sex vikur eftir að öll gögn hafa borist.
Jafnframt segir í orðsendingunni að ef WOW air verður tekið til gjaldþrotaskipta þá þurfi fólk að hafa samband við stéttarfélag sitt eða lögmann og fá aðstoð við að lýsa kröfu í væntanlegt bú. Ekki sé greitt úr Ábyrgðarsjóði launa fyrr en í fyrsta lagi eftir að kröfu hefur verið lýst og skiptastjóri samþykkt hana.
Ekki búin að fá neina tilkynningu frá WOW air um starfsmenn
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, sagði í samtali við Kjarnann í morgun að stofnuninni væri ekki búið að berast nein formleg tilkynningu frá WOW air um hversu marga starfsmenn sé að ræða. Hún sagði jafnframt að Vinnumálastofnun hefði nú þegar sett af stað viðbragðsáætlun og fylgist grannt með stöðu mála. Auk þess hefði stofnunin þegar aukið mannskap í þjónustuveri og lengt opnunartíma.