Starfsmenn WOW air geta sótt um atvinnuleysisbætur

Vinnumálastofnun vekur athygli starfsmanna WOW air á því að þeir geta sótt um atvinnuleysisbætur. Stofnunin hvetur starfsmenn til að sækja um bæturnar sem fyrst þar sem atvinnuleysisbætur eru greiddar frá þeim degi sem umsókn berst.

WOW air - Auglýsing
Auglýsing

Vinnu­mála­stofnun vekur athygli á því að þeir sem hafa starfað hjá WOW a­ir ­geta sótt um atvinnu­leys­is­bætur á heima­síðu stofn­un­ar­inn­ar. Stofnun hvetur fólk til að hefja umsókn­ar­ferlið sem fyrst þar sem atvinnu­leys­is­bætur eru greiddar frá þeim deg­i ­sem umsókn berst. Þetta kemur fram í orð­send­ingu Vinnu­mála­stofn­unar til starfs­manna WOW air.

Ef WOW a­ir verður tekið til gjald­þrota­skipta þá þarf fólk að hafa sam­band við stétt­ar­fé­lag eða lög­mann

Í orð­send­ing­unni kemur fram að á morg­un, föstu­dag­inn 29. mars, verður opið á þjón­ustu­skrif­stofum Vinnu­mála­stofn­unar í Kringl­unni 1, í Reykja­vík og Kross­mó­um 4 í Reykja­nes­bæ, á milli klukkan 13 og 16 fyrir starfs­fólk WOW a­ir. Þar verða frek­ari upp­lýs­ingar veittar og aðstoðað verður við umsókn um atvinnu­leys­is­bætur fyrir þá sem þess óska. Áætlað er að afgreiðsla umsókna fyrir atvinnu­leys­is­bætur taki fjórar til sex vikur eftir að öll gögn hafa borist.  

Auglýsing

Jafn­framt segir í orð­send­ing­unni að ef WOW a­ir verður tekið til gjald­þrota­skipta þá þurfi fólk að hafa sam­band við stétt­ar­fé­lag sitt eða lög­mann og fá aðstoð við að lýsa kröfu í vænt­an­legt bú. Ekki sé greitt úr Á­byrgð­ar­sjóð­i ­launa fyrr en í fyrsta lagi eftir að kröfu hefur verið lýst og skipta­stjóri sam­þykkt hana.

Ekki búin að fá neina til­kynn­ingu frá WOW air um starfs­menn

Unnur Sverr­is­dótt­ir, for­stjóri Vinnu­mála­stofn­un­ar, sagði í sam­tali við Kjarn­ann í morgun að stofn­un­inni væri ekki búið að ber­ast nein form­leg til­kynn­ingu frá WOW air um hversu marga starfs­menn sé að ræða. Hún sagði jafn­framt að Vinnu­mála­stofnun hefði nú þegar sett af stað við­bragðs­á­ætlun og fylgist grannt með stöðu mála. Auk þess hefði stofn­unin þegar aukið mann­skap í þjón­ustu­veri og lengt opn­un­ar­tíma.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent