Forsætisráðuneytið og Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) hafa gert með sér samning um stuðning stjórnvalda við verkefnið Jafnvægisvogina. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Rakel Sveinsdóttir, formaður stjórnar FKA, undirrituðu samning þess efnis í Stjórnarráðinu í gær.
Þetta kemur fram í frétt forsætisráðuneytisins.
Markmið verkefnisins er að stuðla að jafnari hlut kvenna og karla í stjórnum og framkvæmdastjórnum fyrirtækja í samræmi við ákvæði laga sem kveða á um 40-60 kynjahlutfall.
Samningurinn gildir í eitt ár og greiðir forsætisráðuneytið FKA fimm milljónir króna til að sinna þeim verkþáttum sem samningurinn tekur til. Framkvæmd verkefna samkvæmt samningnum fer fram í nánu samráði við skrifstofu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu.
Svigrúm til að gera betur
Forsætisráðherra segir við tilefnið að þrátt fyrir góða stöðu jafnréttismála á Íslandi í alþjóðlegum samanburði þá sýni staða kvenna í stjórnendastöðum að það sé svigrúm til að gera mun betur í fyrirtækjum með 50 starfsmenn eða fleiri og innan 100 stærstu fyrirtækja landsins. „Félag kvenna í atvinnulífinu gegnir mikilvægu hlutverki við að bæta stöðu og hlut kvenna í íslensku atvinnulífi og með verkefninu er verið að virkja fyrirtæki til samstarfs um að gera betur. Nú þegar hafa um 50 fyrirtæki lýst sig reiðubúin til þess. Það er mér sem ráðherra jafnréttismála ánægjuefni að leggja góðu starfi FKA lið,“ segir hún.
Meginmarkmið samningsins er að gera FKA kleift að vinna áfram að því að safna og samræma tölulegar upplýsingar um hlut kvenna og karla í stjórnum og framkvæmdastjórnum fyrirtækja í eigu einkaaðila og hins opinbera. Þá verður mælaborð Jafnvægisvogarinnar uppfært reglulega, fræðsla veitt um mikilvægi fjölbreytileika í stjórnum og stjórnendateymum og kynningar haldnar á mælaborðinu og markmiðum verkefnisins fyrir fyrirtæki, stjórnvöld og almenning. Einnig verður fyrirtækjum fjölgað til liðs við verkefnið og Jafnvægisvogar-viðurkenningu veitt til þeirra sem náð hafa markmiðum verkefnisins um jafnari hlut kvenna og karla.
Neikvæð þróun hérlendis
Í desember 2018 var greint frá því að Íslandi tróni á toppnum á lista Alþjóðaefnahagsráðsins yfir ríki þar sem kynjajafnfrétti er mest. Næst á eftir Íslandi á listanum eru önnur Norðurlönd: Noregur, Svíþjóð og Finnland, en alls nær úttektin yfir 149 lönd. Hún leggur mat á jafnrétti kynjanna í stjórnmálum, menntun, atvinnu og heilbrigði.
Samkvæmt niðurstöðu úttektarinnar mun það taka heiminn 108 ár að ná fullu jafnrétti karla og kvenna í heiminum. Ísland er, líkt og áður sagði, komið lengst á þeirri vegferð. 85,8 prósent af kynjaójafnréttisbilinu er þegar brúað samkvæmt mælikvörðunum sem miðað er við. Þrátt fyrir forystuhlutverk Íslands þá hefur líka átt sér stað neikvæð þróun hérlendis.
Þannig hafi konum á þingi fækkað í kosningunum 2017. Fjöldi þeirra fór úr mettölunni 30 í 24 og hlutfallið á meðal þingmanna allra úr 47,6 prósent í 38 prósent. Hlutfall kvenna á Alþingi hefur ekki verið lægra eftir hrun. Sigurvegarar þeirra kosninga voru miðaldra karlar, sem juku umfang sitt á meðal þjóðkjörinna fulltrúa umtalsvert.
Þátttaka og tækifæri kvenna í efnahagslífinu dregist saman
Í úttekt Alþjóðaefnahagsráðsins segir enn fremur að konum í æðstu embættismannastöðum hafi einnig fækkað sem og hlutfall kvenna á meðal stjórnenda í fyrirtækjum.
Þá hafi þátttaka og tækifæri kvenna í efnahagslífinu líka dregist saman.
Kjarninn hefur framkvæmt úttekt á því hvers kyns þeir sem stýra fjármagni á Íslandi eru árlega frá 2014. Úttektin nú er því sú sjötta sem framkvæmd hefur verið.
Í ár nær hún, líkt og í fyrra, til 90 æðstu stjórnenda viðskiptabanka, sparisjóða, lífeyrissjóða, skráðra félaga, óskráðra tryggingafélaga, lánafyrirtækja, verðbréfafyrirtækja og -miðlana, framtakssjóða, orkufyrirtækja, greiðslustofnana, Kauphallar og lánasjóða. Niðurstaðan nú er sú að 80 þeirra eru karlar en tíu eru konur. Konum fjölgar um eina á milli ára en hlutfall þeirra á meðal helstu stjórnenda fjármagns á Íslandi fer með því úr tíu prósentum í 11,1 prósent milli áranna 2018 og 2019.
Þessi hópur sem fellur undir úttektarskilyrðin stýrir þúsundum milljarða króna og velur í hvaða fjárfestingar þeir peningar rata hverju sinni.
Lítið sem ekkert breyst
Þegar úttekt Kjarnans var framkvæmd fyrst, í febrúar 2014, voru störfin sem hún náði yfir 88 talsins. Þá sátu 82 karlar í þeim störfum en sex konur. Árið 2015 voru störfin 87, karlarnir 80 og konurnar sjö. 2016 voru störfin 92, karlarnir 85 og konurnar sjö. Árið 2017 var niðurstaðan 80 karlar og átta konur. Í fyrra var hún 81 karl og níu konur. Og í ár fjölgaði konunum um eina en körlunum fækkaði um jafnmarga.
Niðurstaðan er sú að lítið sem ekkert hefur breyst á þessum árum sem þó eiga að teljast einhver þau framsæknustu í jafnréttismálum.