Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, segir í vikulegum pistli sínum í dag að hún hafi ekki mikið verið í því að hrósa núverandi ríkisstjórn en nú verði hún að segja að þær aðgerðir sem ríkisstjórnin kom með að borðinu hafi verið lykillinn að því að hægt var að klára kjarasamningana.
„Það var allt undir í þessum samningum, launakröfur, réttllætismál á vinnumarkaði, stytting vinnuvikunnar, húsnæðismál, skattamál, lífeyrismál, verðtryggingin, jafnréttismál og brotastarfsemi á vinnumarkaði svo nokkur atriði séu nefnd. Árangurinn hvíldi á aðgerðum stjórnvalda og þær birtast í yfirlýsingum í tengslum við samningana. Svo er það sameiginlegt verkefni okkar í verkalýðshreyfingunni að fylgja því eftir að staðið verði við loforðin,“ segir hún í pistlinum.
Verkalýðshreyfingin á margt úrvals fólk sem er tilbúið til verka
Drífa bendir á að nú sé valdið í höndum verkafólks og verslunarmanna að taka afstöðu til kjarasamninganna. Enn eigi iðnaðarmenn eftir að semja og sama gildi um félög með beina aðild að ASÍ. Svo séu opinberu samningarnir eftir líka þannig að það sé næg vinna framundan.
„Nú þegar einn og hálfur sólarhringur er liðinn frá undirritun stendur upp úr hvað verkalýðshreyfingin á margt úrvals fólk sem tilbúið er til verka. Að svona kjarasamningum koma hundruð manna og í Karphúsinu í vikunni kom saman reynsla og þekking þeirra sem hafa gert marga kjarasamninga og svo nýtt fólk með nýja sýn og ferskar hugmyndir. Það var góð blanda. Samningarnir voru prófraun á gríðarlega marga og allir stóðust prófið þegar upp var staðið,“ skrifar Drífa.
Hún hvetur þá sem taka laun samkvæmt nýjum kjarasamningum að kynna sér samningana, fylgjast vel með heimasíðu sinna félaga og afla upplýsinga um kynningarfundi og atkvæðagreiðslur. Hún segist hafa mikla trú á að þessir samningar verði samþykktir og að hægt verði að fara að vinna á grundvelli þeirra. „Það er líka gott að hafa í huga að barátta verkalýðshreyfingarinnar fyrir bættum kjörum og betra samfélagi er virk hvort sem kjarasamningar eru lausir eða ekki. Sú vinna hættir aldrei.“