Skoða að setja upp gjaldtöku á umferð innan höfuðborgarsvæðisins

Sigurður Ingi Jóhannsson hefur skipað verkefnahóp sem kannar meðal annars umferðarstýringu með gjaldtöku. Honum er ætlað að finna fjármögnunarleiðir fyrir framkvæmdir upp á rúmlega 100 milljarða króna á og við höfuðborgarsvæðið.

Sigurður Ingi Jóhannsson
Auglýsing

Ein þeirra sviðs­mynda sem verið er að skoða í fram­tíð­ar­skipu­lagi sam­göngu­mála á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er að setja upp gjald­töku til að stýra umferð inn á ákveðin svæði í höf­uð­borg­inni, til dæmis inn í mið­borg henn­ar.

Þetta sagði Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

„Það er ein sviðs­myndin sem við erum að vinna eftir og munum gera í sam­starfi við sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í þeim til­gangi að ná fram þessum mark­miðum um örugg­ari og skil­virk­ari umferð en líka þessum loft­lags­mark­miðum okkar um betri loft­gæði. Við vitum að hér í Reykja­vík er illu heilli oft á tíðum bara ekki nógu gott ástand hvað varðar loft­gæði og við þurfum að gera eitt­hvað í því og umferðin er oft á tíðum stærsti þátt­ur­inn þar.“

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.



Í lok mars kynntir Sig­urður Ingi ákvörðun um að stofna vinnu­hóp í sam­starfi rík­is­stjórnar og Sam­taka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem hefur það mark­mið að finna fjár­mögn­un­ar­leiðir fyrir stór­fram­kvæmdir í sam­göngum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Stefnt er að því að vinnu­hóp­ur­inn ljúki störfum á næstu tveimur mán­uð­um.  

Hann sagði í þætt­inum að í þeirri veg­ferð væri verið að horfa á norskt mód­el, sem fyr­ir­finnst meðal ann­ars í Osló, Björg­vin, Stavangri og tveimur öðrum þétt­býl­is­kjörnum þar sem eru

sam­bæri­legir að stærð við höf­uð­borg­ar­svæð­ið. „Þar sem að menn hafa sett upp gjald­töku sem að hefur áhrif á hegðun fólks á ákveðin hátt. Stýrir umferð“.

Auglýsing
Sigurður Ingi sagði að starfs­hóp­ur­inn snú­ist ann­ars vegar um að full­kanna allar fjár­mögn­un­ar­leiðir og ná sam­stöðu milli ríkis og sveit­ar­fé­laga um þær leiðir sem eigi að fara.  „Við erum að tala um fram­kvæmd­ar­pakka eða fram­kvæmdir sem eru 102-105 millj­arðar á að lág­marki 15 árum. Myndu hefj­ast 2021. Þannig að þetta eru kannski rúmir sjö millj­arðar á ári.“

Í vinn­unni er höf­uð­borg­ar­svæðið afmarkað frá Vest­ur­lands­vegi, Reykja­nes­braut og Suð­ur­lands­vegi. Allar stofn­braut­ar­fram­kvæmdir sem þar eru áætl­að­ar, eru inni í þeim pakka sem um ræð­ir. Áætl­aður kostn­aður þeirra er um 50 millj­arðar króna. Hin marg­um­rædda Borg­ar­lína er líka hluti af pakk­anum en kostn­aður við þann hluta hennar sem er þar inni er áætl­aður að minnsta kosti 42 millj­arðar króna. Auk þess eru fram­kvæmdir við fjöl­breytt­ari ferða­máta á borð við hjóla­stíga og göngu­stíga þar inni sem og umferð­stýr­ing.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent