3500 laus störf á fyrsta ársfjórðungi 2019

Hagstofan hefur nú hafið mælingar á fjölda lausra starfa hér á landi. Á fyrsta ársfjórðungi 2019 voru um 3.500 störf laus á íslenskum vinnumarkaði. Á sama tíma voru um 228.300 störf mönnuð og hlutfall lausra starfa því rétt um 1,5 prósent.

Verkamaður við vinnu
Auglýsing

Á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins voru um 3.500 störf laus á íslenskum vinnu­mark­aði. Á sama tíma voru um 228.300 störf mönnuð og hlut­fall lausra starfa því rétt um 1,5 pró­sent á fyrsta árs­fjórð­ungi 2019. Þetta kemur fram á vef Hag­stofu Íslands

Vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hag­stof­unnar er hluti af sam­starfi ríkja á Evr­ópska efna­hags­svæð­inu um vinnu­mark­aðs­töl­fræð­i. Hag­stofan hefur nú rann­sakað vinnu­mark­að­inn hér á landi með­ árs­fjórð­ungs­lega ­nið­ur­stöðum sam­fellt frá árs­byrjun 2003. Aftur á móti er þetta í fyrsta skipti sem Hag­stofan birtir tölur um fjölda og hlut­fall lausra starfa á íslenskum vinnu­mark­aði en þessar tölur eru birtar til að bera saman fjölda lausra starfa inn­an­ ­Evr­ópu. Til að mynda var á fjórða árs­fjórð­ungi 2018 hlut­fall lausra starfa 2,3 pró­sent í Evr­ópu­sam­band­inu en þá var hlut­fallið hæst í Tékk­landi eða alls 6 pró­sent.  

Mun færri konur en karlar í fullu starfi

Ef vinnu­mark­að­ur­inn hér á landi á fjórði árs­fjórð­ungur 2018 er skoð­aður þá má sjá að jafn­aði voru 203.700 manns á aldr­inum 16 til 74 ára á vinnu­mark­aði. Af þeim voru 198.900 starf­andi og 4.900 án vinnu og í atvinnu­leit. Atvinnu­þátt­taka var því 80 pró­sent, hlut­fall starf­andi 78,6 pró­sent en atvinnu­leysi 2,4 pró­sent á fjórða árs­fjórð­ung­i 2018. Starf­and­i ­fólki fjölg­aði um 4500 á milli ára en hlut­fall starf­andi af mann­fjölda lækk­aði þó um hálft pró­sentu­stig. 

Auglýsing

Af starf­andi fólki á fjórða árs­fjórð­ungi 2018 voru 148.500 í fullu starfi, eða 74,7 pró­sent og 50.400 í hluta­starfi eða 25,3 pró­sent. Fólki í fullu starfi fjölg­aði um 4.800 frá fjórða árs­fjórð­ungi 2017 en fjöldi fólks í hluta­störfum stendur í stað. Tals­verður munur er á kynj­unum þegar að kemur að starfs­hlut­falli en  starf­andi konum voru 62,3 pró­sent í fullu starfi á fjórða árs­fjórð­ungi 2018 og 88,6 pró­sent af starf­andi körlum

Atvinnu­leysi eigi eflaust eftir að taka stökk upp á við

Á fjórða árs­fjórð­ungi mæld­ist at­vinnu­leysi 2,4 pró­sent, sam­kvæmt töl­u­m Hag­stof­unn­ar. Atvinnu­leysi ­mæld­ist hæst líkt og vana­lega hjá ald­urs­hópnum 16 til 24 ára eða 5,3 pró­sent. Ef litið er til mennt­unar var atvinnu­leysi hjá þeim sem hafa aðeins lokið grunn­menntun 4,3 pró­sent. Hjá þeim sem lokið hafa starfs- eða fram­halds­menntun mæld­ist atvinnu­leysi 2,1 pró­sent og 1,3 pró­sent meðal þeirra sem lokið hafa háskóla­mennt­un. Eng­inn munur var á atvinnu­leysi milli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og utan þess.

Vinnu­mála­stofnun mælir einnig atvinnu­leysi en töl­ur Vinnu­mála­stofn­un­ar ­sýna hversu margir eru skráðir atvinnu­lausir og njóta atvinnu­leysis bóta. Á meðan nið­ur­stöður Hag­stof­unnar byggja á mán­að­ar­legri úrtakskönnun þar sem fólk er spurt um stöðu sína. 

Í nýrri Hag­sjá Lands­bank­ans má sjá að ef litið er til 12 mán­aða hlaup­andi með­al­tals hefur atvinnu­leysi sam­kvæmt mæl­ingum Hag­stof­unnar verið nokkuð stöðugt í næstum tvö ár. ­Tölur Vinnu­mála­stofn­unar um skráð atvinnu­leysi hafa hins vegar hækkað nokkuð á síð­ustu mán­uð­u­m. 

Mynd: Landsbankinn

Í febr­ú­ar var ­skráð atvinnu­leysi 3,1 pró­sent sam­an­borið við 2,1 pró­sent í febr­úar árið 2018. Í kjöl­far gjald­þrot WOW a­ir í lok mars er búist við fjölda upp­sagna og sam­kvæmt Vinnu­mála­stofnun er talið að alls hafi um 1.600 manns fengið upp­sagn­ar­bréf í mars­mán­uði. Færu þeir allir á atvinnu­leys­is­skrá myndi skráð atvinnu­leysi strax fara upp í kringum 4 pró­sent. Í hag­sjá Lands­bank­ans segir að ekki verð­i út­séð hver þró­unin verður á næstu vikum og mán­uðum en að atvinnu­leysi eigi eflaust eftir að taka stökk upp á við. 

Farið að hægja á fjölgun erlendra rík­­is­­borg­­ara

Hlut­­­fall inn­­­flytj­enda á Íslandi hefur aldrei verið hærra en árið 2018 en þá voru inn­­­flytj­endur 12,6 pró­­­sent mann­­­fjöld­ans. Á árunum 2017 og 2018 átti sér stað met­­fjölgun erlendra rík­­is­­borg­­ara sem koma hingað til lands til að búa hér. Á því tíma­bili fjölg­aði þeim um alls 13.930, eða um tæp 46 pró­­sent. Á­stæðan er sú að á Íslandi var mik­ill efna­hags­­upp­­­gangur og mik­ill fjöldi starfa var að fá sam­hliða þeim upp­­­gangi, sér­­stak­­lega í þjón­ust­u­­störfum tengdum ferða­­þjón­­ustu og í bygg­inga­iðn­­að­i. 

Mynd: HagstofanNú hins vegar þegar hag­­kerfið er farið að kólna og spenna að losna þá virð­ist erlendum rík­­is­­borg­­urum sem sækja hingað til lands fækka sam­hliða. Sam­kvæmt tölum hag­stof­unnar fjölg­aði erlendum rík­­is­­borg­­urum sem búsettir eru á Íslandi um 820 á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins 2019. Til sam­an­­burðar þá fjölgað erlendum rík­­is­­borg­­urum með búsetu á Íslandi um 1.620 á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2018. Því virð­ist allt stefna í að mun færri erlendir rík­­is­­borg­­arar muni flytja til lands­ins á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs en gerðu það á sama tíma­bili í fyrra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent