Ætlar að hóp­fjár­magna endurreisn WOW air

Skúli Mogensen hyggst nýta sér erlendan hópfjármögnunarvettvang til að safna 670 milljónum króna til að endurreisa WOW air. Lágmarksfjárhæðin sem hægt verður að leggja til verkefnisins verður á bilinu 200 til 250 þúsund krónur.

Skúli Mogensen
Skúli Mogensen
Auglýsing

Skúli Mog­en­sen, ­stofn­andi og fyrr­ver­andi for­­stjóri flug­­fé­lags­ins WOW a­ir, hyggst efna til hóp­fjár­mögn­unar á erlendum hóp­fjár­mögn­un­ar­vett­vangi, svip­uð­u­m Karol­ina fund, til þess að end­ur­reisa flug­fé­lag­ið WOW a­ir. Mark­miðið er að safna 670 millj­ónum króna en lág­marks­fjár­hæð­in ­sem hægt verður leggja til flug­fé­lags­ins verður um 200 til 250 þús­und íslenskra króna. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Leita af inn­spýt­ingu upp á 4,8 millj­arða króna

­Greint var frá því í síð­ustu viku að Skúli væri að reyna afla fjár­magns til að end­ur­vekja flug­fé­lag­ið WOW a­ir ­sem tekið var til gjald­þrota­skipta fyrir 11 dög­um. Í fjár­festa­kynn­ingu fyrir nýja flug­fé­lagið kom fram að Skúli og aðrir lyk­il­­starfs­menn WOW a­ir ­væru að leita að 40 millj­­­ón­ir Banda­­ríkja­dala inn­spýt­ing­u i ­fé­lag­inu, sem nem­ur um 4,8 millj­­­örðum króna, til að standa straum af kostn­aði við upp­­­haf rekst­­­ur­s­ins. 

Auglýsing

Í kynn­ing­unni kom fram að nýja flug­­­fé­lagið muni hafa lággjalda­­stefnu í hávegum líkt og á fyrstu árum WOW air. Þá segir að Skúli og aðrir sem munu koma að stofnun félags­­ins muni eiga 51 pró­­sent hlut í flug­­­fé­lag­inu en fjár­­­festar sem leggi því til 40 millj­­ónir Banda­­ríkja­dala 49 pró­­sent. Auk þess sé stefnt að því að kaupa helstu eignir úr þrota­bú­i WOW a­ir, þar á meðal vöru­merk­ið.

Sam­kvæmt heim­ildum Frétta­blaðs­ins hafa skipta­stjórar þrota­bús WOW a­ir ­tekið vel í hug­myndir um að Skúli og þeir lyk­il­starfs­menn sem taka þátt í fjár­mögn­un­inni taki yfir kröfur um tvö hund­ruð starfs­manna um van­goldin laun og fyr­ir­geri þar með rétti sínum á þriggja mán­aða upp­sagn­ar­fresti sem þeir eiga inni hjá flug­fé­lag­in­u. Þá segir að þetta sé „sam­fé­lags­lega ábyrgt“ og til þess fallið að almennir kröfu­hafar eigi meiri mögu­leika á heimtum úr þrota­bú­in­u. Í stað­inn fái Skúli að halda vöru­merk­in­u WOW. ­Tímara­mm­inn er þó sagður naumur þar sem flug­vél­arn­ar ­sem nýja flug­fé­lagið vill taka á leigu muni ekki standa auðar mikið lengur en út vik­una. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent