Yfir fjögur þúsund viðskiptavinir hafa skráð sig fyrir nýjum sparnaðarreikningum hjá Auði, nýrri fjármálaþjónustu Kviku, á einum mánuði eða frá því að þjónustan tók til starfa.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Auði.
„Móttökurnar hafa verið framar okkar björtustu vonum. Viðskiptavinum Auðar hefur fjölgað jafnt og þétt á þessum fyrsta mánuði og þeir eru á öllum aldri – ungir sem aldnir,“ segir Ólöf Jónsdóttir, forstöðumaður Auðar. „Það er ljóst að mikil eftirspurn er eftir sanngjarnri fjármálaþjónustu á netinu og því spennandi tímar framundan.“
Auður hóf sem fyrr segir starfsemi fyrir mánuði síðan. Auður býður sparnaðarreikninga fyrir einstaklinga með fjögur prósent vöxtum sem greiddir eru mánaðarlega.
Sparnaðarreikningarnir eru óbundnir og því alltaf lausir til úttektar.
Markmið Auðar er að bjóða sparifjáreigendum betri vexti en þekkst hafa hingað til með því að nýta tæknilausnir og stöðu Kviku sem banka án útibúanets, segir í tilkynningu.
Öllum kostnaði er haldið í lágmarki og er það svigrúm nýtt til að bjóða viðskiptavinum betri kjör en fást hjá öðrum bönkum.
„Auður er gott dæmi um það hvernig bankakerfið er að þróast þar sem stór hluti þjónustunnar fer nú fram á netinu sem skilar sér svo í betri kjörum fyrir viðskiptavini,“ segir Ólöf. Þjónusta Auðar fer eingöngu fram á netinu. Lágmarksupphæð reikninga er 250.000 krónur en heimilt er að hafa reikning undir lágmarksupphæð í 180 daga.
Auður nýtir rafræn skilríki til auðkenningar og fara öll viðskipti hennar fram í íslenskum krónum.
Kvika er skráð á aðallista kauphallar Íslands. Markaðsvirði bankans er um 20 milljarðar króna.