Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, hefur sagt starfi sínu lausu. Stjórn bankans og Höskuldur hafa komist að samkomulagi um að hann sinni starfi bankastjóra fram til næstu mánaðarmóta.
Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallar.
„Nú eru um níu ár síðan ég kom til starfa hjá bankanum. Óhætt er að segja að verkefnin hafi verið fjölbreytt á þessum árum. Fyrstu árin fólst verkefnið fyrst og fremst í að takast á við skuldavanda viðskiptavina bankans, bæði fyrirtækja og heimila. Þá var hlutfall vandræðalána hjá bankanum vel yfir 50% en er í dag í takt við það sem best gerist hjá fjármálafyrirtækjum í löndunum í kringum okkur. Við tók uppbygging bankans og Arion banki er í dag með skýra framtíðarsýn, öflugan mannauð og í forystu hér á landi þegar kemur að þróun fjármálaþjónustu. Eftir vel heppnað alþjóðlegt hlutafjárútboð á síðasta ári var bankinn skráður á markað í kauphallir á Íslandi og í Svíþjóð og er eignarhald bankans í dag vel dreift og hluthafar bæði innlendir og erlendir fjárfestar. Bankinn er fjárhagslega sterkur með traustan grunnrekstur og vel í stakk búinn fyrir það sem framtíðin ber í skauti sér. Ég tel þetta vera rétta tímann til að fela öðrum að taka við keflinu,“ segir Höskuldur í tilkynningunni.
Arion banki er nú skráður á markað bæði á Íslandi og í Svíþjóð, en markaðsvirði hans 153 milljarðar króna, eftir rúmlega 1 prósent lækkun í dag, en eigið fé bankans um síðustu áramót var 200,9 milljarðar.
Brynjólfur Bjarnason, stjórnarformaður bankans, þakkar Höskuldi fyrir hans starf í þágu bankans, á uppbyggingartíma hans. „Ég vil þakka Höskuldi fyrir hans mikilvæga þátt í þróun og uppbyggingu Arion banka á síðustu níu árum. Hans forysta og staðfesta hafa reynst bankanum vel í gegnum ýmsar áskoranir á þeim árum sem hann hefur verið við stjórnvölinn. Við í stjórn bankans virðum hans ákvörðun um að nú sé góður tímapunktur til að láta af störfum. Höskuldur skilar góðu búi þar sem bankinn nýtur sterkrar stöðu á þeim mörkuðum sem hann starfar á. Fyrir hönd stjórnar bankans þakka ég Höskuldi mikilvægt framlag í þágu bankans.“
Nokkrar breytingar hafa orðið á hluthafahópi Arion banka að undanförnu. Kaupskil er enn stærsti hluthafinn með 18,4 prósent hlut en Taconic Capital er með 14,3 prósent hlut.
Stoðir hf., áður FL Group, er meðal stærstu hluthafa bankans með 4,22 prósent hlut.