Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir að vinnunni sé ekki lokið þó kjarasamningar séu undirritaðir. Samningarnir og yfirlýsing stjórnvalda bjóði upp á töluverða eftirfylgni og ljóst sé að það verði verkefni einstakra aðildarfélaga ASÍ og heildarsamtakanna að fylgja málum fast eftir og stjórnvalda að standa við stóru orðin. Þetta kemur fram í vikulegum pistli Drífu.
„Þess ber líka að geta að iðnaðarmenn eiga eftir að ganga frá samningum og sama má segja um nokkra aðra stóra hópa innan ASÍ, þar á meðal flugfreyjur og leiðsögumenn svo einhverjir séu nefndir. Allir hóparnir komu þó með innlegg í viðræður við stjórnvöld og þar skipti ekki síst máli áherslur iðnaðarmanna á breytingar á lífeyrismálum og áframhaldandi möguleika á að niðurgreiða húsnæðislán með séreignasparnaði,“ skrifar hún.
Drífa sótti fundi hjá bæði VR og Eflingu í vikunni þar sem nýir kjarasamningar voru kynntir. „Í samningunum var allt undir og sama má segja um fundina en flestar spurningarnar lutu þó að styttingu vinnuvikunnar og skattatillögum stjórnvalda.“
Framkvæmdastjóri ITUC sagði samninginn vera samstöðuaðgerð
Hún segir enn fremur að þó það sé ánægjulegt að sækja fundi hjá aðildarfélögum þá verði hún að segja að enn meiri ánægju hafi veitt henni að segja erlendum gestum frá árangri þeirra í nýafstöðnum samningum. „Það kemur þeim spánskt fyrir sjónir að svo mikið hafi verið undir og að raunverulegar samfélagsbreytingar séu niðurstaðan. Sharan Burrow, framkvæmdastjóri alþjóðasamtaka verkalýðsfélaga (ITUC), sagði samninginn vera „act of solidarity“ eða samstöðuaðgerð og í anda alþjóðlegrar baráttu vinnandi fólks fyrir betri samfélagi.
En þegar allt er undir, gleymist stundum að segja frá smásigrunum sem rötuðu inn í samninga ýmist hjá verkafólki eða verslunarmönnum. Þannig var líka samið um að styrkja réttindi ungmenna (færri á ungmennalaunum en áður), auka réttindi verkafólks til að sinna veikum börnum, uppsagnarákvæði í SGS samningnum voru styrkt, réttindi trúnaðarmanna voru aukin, rétturinn til orlofstöku utan orlofstímabila staðfestur, túlkaþjónusta aukin, bann við kynbundinni mismunun í vinnufatnaði innleidd, flutningur áunninna réttinda við aðilaskipti að fyrirtækjum tryggður, aukinn réttur fólks sem leigir húsnæði af atvinnurekanda, menntun starfsfólks í verslunum styrkt auk fjölda annarra atriða sem í flestum öðrum samningum hefðu talist til stórsigra,“ segir Drífa.