Ekki fást svör við hver eða hverjir standa að baki vefsíðunnar hluthafi.com þar sem óskað er eftir því að landsmenn taki sig saman til að endurreisa flugfélagið WOW air eða stofna nýtt lággjaldaflugfélag. Einstaklingum og fyrirtækjum er boðið að skrá hlutafjárlof á vefsíðunni en hvergi á síðunni kemur fram hverjir standa að baki síðunni eða hvað þá söfnuninni. Einu upplýsingarnar eru þær að þeir einstaklingar sem standa að gerð síðunnar og væntanlegs almenningshlutafélags hafa ekki starfað hjá WOW air og eru ekki tengdir félaginu á nokkurn hátt.
Í svari við fyrirspurn Kjarnans segir að heimasíðan hluthafi.com sé aðeins vettvangur til þess að safna saman áskrifendum svo að þeir hafi síðar heimild til að sækja stofnfund, það er ef skilyrðin eru uppfyllt sem eru að annars vegar að endurreisa félag eða hins vegar stofna nýtt lággjaldaflugfélag. Ef það tekst ekki þá verði engin áskrift og þar með verði ekkert af þeim loforðum, sem þegar hafa verið gefin og falla þau þá niður ógild. Ekki fengust svör við hver eða hverjir standa að baki vefnum og söfnuninni
Jafnframt kemur fram í svarinu að aðstandendur síðunnar stefna að því að senda frá sér yfirlýsingu á morgun eða þriðjudag.
Þurfa 10 til 20 þúsund hluthafa
Greint var frá því í síðustu viku að Skúli Mogensen hygðist endurvekja rekstur WOW air. Skúli og aðrir lykilstarfsmenn WOW air eru því um þessar mundir að leita að fjármögnunar upp á 40 milljónir Bandaríkjadala, eða sem nemur um 4,8 milljörðum króna, til að standa straum af kostnaði við upphaf rekstursins.
Á síðunni, hluthafi.com, segir að með hverjum deginum muni Skúla og hans fólki reynast erfiðara að endurreisa WOW. Þar af leiðandi sé nauðsynlegt að almenningur komi að stofnun almenningshlutafélags sem gæti fjárfest í nýju flugfélagi. Þá segir að ef náist að safna minnst 10 til 20 þúsund hluthöfum þá sé hægt að stofna almenningshlutafélag sem myndi fjárfesta í WOW air eða nýju lággjaldaflugfélagi.
Fjárráða einstaklingar og fyrirtæki geta skráð sig fyrir bindandi hlutafjárloforði í 90 daga á síðunni. Nýliðum í fjárfestingum er hins vegar ráðlagt að lofa ekki meira hlutafé en sem nemur einum fimmta af mánaðarlaunum. Ekki fást hins vegar svör hverjir standa að baki söfnuninni eða hvað stefnt sé að því að safna miklu.