Ábyrgðarmaður söfnunar fyrir WOW kominn fram

Friðrik Atli Guðmundsson er skráður sem ábyrgðarmaður vefsíðunnar hluthafi.com og er hún styrkt af byggingarfélagi föður hans, Sólhús ehf..

Screen Shot 2019-04-14 at 18.34.01.png
Auglýsing

Frið­rik Atli Guð­munds­son er skráður sem ábyrgð­ar­maður vef­síð­unnar hlut­hafi.com um stofnun almenn­ings­hluta­­fé­lags sem gæti fjár­­­fest í end­­ur­reisn­ WOW a­ir. Á vef­síð­unni eru ein­stak­l­ing­ar og fyr­ir­tæki hvött til að leggja fram „lít­ils­hátt­ar hluta­­­fé“ í krafti fjöld­ans til að end­­ur­reisa WOW a­ir eða stofna nýtt lággjalda flug­­­fé­lag.

­Síðan var opnuð í gær en treg­lega gekk fyrir fjöl­miðla að fá svör hver eða hverjir stæðu að baki síð­unni. Þó var tekið fram að þeir ein­stak­l­ing­ar væru ekki tengdir WOW air á nokk­urn hátt.

Sam­kvæmt RÚV er vef­síðan styrkt af bygg­ing­ar­fé­lagi föður Frið­riks, Sól­hús ehf. Frið­rik stað­festi í sam­tali við frétta­stofu RÚV að það væri hann og bygg­ing­ar­fé­lag föður hans, Sól­hús, sem væru ábyrgir fyrir síð­unni en það væri ágætur hópur manna sem stæði að þessu átaki.

Auglýsing

Von­ast til að almenn­ingur taki sig saman

Frið­rik vildi ekki gefa upp hverjir það nákvæm­lega væru en það myndi von­andi skýr­ast á næst­unni. Hann sagði að þeir von­uð­ust til að almenn­ingur tæki sig saman og sam­ein­að­ist um að hér á landi væri lággjalda­flug­fé­lag, hvort sem það væri WOW eða nýtt flug­fé­lag.

Hann sagði þetta vera ein­stak­linga sem væru ekk­ert frá­brugðnir öðrum sem sæju tæki­færi í að hafa lággjalda­flug­fé­lag hér á landi. Að öðru leyti gæti hann voða­lega lítið sagt eins og staðan væri núna. Hann sagði að fólk hefði haft sam­band og sýnt þessu áhuga og því gæti hóp­ur­inn stækkað enn frek­ar.

Skúli vissi ekki af síð­unni

Greint var frá því í síð­­­ustu viku að Skúli hygð­ist end­­­ur­vekja rekst­ur WOW air. Skúli og aðrir lyk­il­­­starfs­­­menn WOW air eru því um þess­ar mund­ir að leita að fjár­­­­­mögn­un­ar upp á 40 millj­­­ón­ir Banda­­­ríkja­dala, eða sem nem­ur um 4,8 millj­­­örðum króna, til að standa straum af kostn­aði við upp­­­haf rekst­­­ur­s­ins. 

Á síð­­unn­i, hlut­hafi.com, segir að með hverjum deg­inum muni Skúla og hans fólki reyn­­ast erf­ið­­ara að end­­ur­reisa WOW. Þar af leið­andi sé nauð­­syn­­legt að almenn­ingur komi að ­stofn­un al­­menn­ings­hluta­­fé­lags sem gæti fjár­­­fest í nýju flug­­­fé­lag­i. Þá segir að ef náist að safna minnst 10 til 20 þús­und hlut­höfum þá sé hægt að stofna al­­menn­ings­hluta­­fé­lag ­sem myndi fjár­­­festa í WOW a­ir eða nýju lággjalda­flug­­fé­lag­i.

„Við teljum að ef Skúli og hans besta fólk getur end­­ur­reist WOW a­ir þá eigum við sem ein­stak­l­ingar í þessu landi að sam­ein­­ast um að hjálpa til. Því hvetjum við ein­stak­l­inga og fyr­ir­tæki til að leggja fram ­lít­ils hátt­ar hlutafé í krafti fjöld­ans og tryggja rekst­ur WOW a­ir til fram­tíð­ar.“

Skúli Mog­en­sen, fyrr­ver­andi for­stjóri WOW air, sagð­ist í kvöld­fréttum RÚV í gær ekk­ert vita um þessa síðu en netaf­brota­deildin ætlar að skoða hana á dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent