Íslandsbanki nú skráður fyrir meira en fimm prósent hlut í Kviku

Viðskiptavinir Íslandsbanka, sem fjármagnaðir eru í gegnum framvirka samninga við bankann, eiga nú 5,28 prósent hlut í Kviku banka. Hluturinn er skráður á Íslandsbanka og þurfti að flagga eign bankans í dag.

Kvika var skráð á aðalmarkað Kauphallar Íslands í lok mars.
Kvika var skráð á aðalmarkað Kauphallar Íslands í lok mars.
Auglýsing

Flöggun hefur verið birt í til­kynn­inga­kerfi Kaup­hallar Íslands vegna þess að Íslands­banki fer nú með 5,28 pró­sent atkvæð­is­rétta í Kviku banka. Það gerð­ist eftir að bank­inn keypti umtals­verðan hlut í Kviku í dag og heldur nú á 5,28 pró­sent af útgefnu hluta­fé.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er um fram­virka samn­inga að ræða sem Íslands­banki gerir fyrir valda við­skipta­vini sína, en ekki við­skipti fyrir eigin bók. Bank­inn er nú skráður fjórði stærsti eig­andi Kviku banka. Íslands­banki er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins. 

Auglýsing
Íslandsbanki er líka á lista yfir stærstu eig­endur hins íslenska bank­ans sem skráður er á mark­að, Arion banka. Alls er hlutur Íslands­banka í Arion banka 2,89 pró­sent en hann var keyptur í byrjun apríl þegar Kaup­þing ehf., stærsti eig­andi Arion banka, seldi 15 pró­sent hlut í bank­an­um.

Mark­að­ur­inn, fylgi­rit Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, greindi frá því nýverið að Sig­urður Bolla­son, einn stærsti hlut­hafi Kviku, hefði verið að byggja upp stöðu í Arion banka og að sú staða væri meðal ann­ars fjár­mögnuð í gegnum fram­virka samn­inga hjá Íslands­banka. Alls ætti hann og félög tengd honum um tvö pró­sent hlut í Arion banka. 

Ekki hefur verið opin­berað hvaða aðrir við­skipta­vinir Íslands­banka hafa gert fram­virka samn­inga um fjár­fest­ingar í bönkum sem skráðir eru á mark­aði né hver gild­is­tími samn­ings­ins er.

Stærsti ein­staki eig­andi Kviku banka er Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna með 9,49 pró­sent hlut. Þar á eftir kemur félagið K2B fjár­fest­ingar í eigu Svan­hildar Nönnu Vig­fús­dótt­ur, en það félag á 7,7 pró­sent hlut. Vátrygg­inga­fé­lag Íslands, þar sem Svan­hildur Nanna er stjórn­ar­maður og stór fjár­festir í gegnum K2B fjár­fest­ing­ar, er svo þriðji stærsti eig­andi Kviku með 6,45 pró­sent eign­ar­hlut.

Áður­nefndur Sig­urður Bolla­son er stærsti eig­andi RES II ehf., sem er fjórði stærsti eig­andi Kviku. 

Hinir tveir stóru bank­arn­ir, Arion banki (4,93 pró­sent) og rík­is­bank­inn Lands­bank­inn (3,67 pró­sent), eru einnig skráðir á meðal stærstu eig­enda Kviku banka. 

Hvað er framvirkur samningur?

Fram­virkir samn­ingar er ein teg­und afleiða þar sem einn aðili hefur gert samn­ing við annan um skyld­una til þess að eiga við­skipti um ein­verja til­tekna und­ir­liggj­andi eign á ákveðnum degi í fram­tíð­inni við fyr­ir­fram ákveðnu verði. Í þessu til­felli kaupir Íslands­banki hlut í Kviku en við­skipta­vinur bank­ans skuld­bindur sig til að kaupa hlut­inn af bank­anum á ákveðnu verði í fram­tíð­inni. Þegar þau við­skipti eiga sér stað flyst eign­ar­haldið á hlutnum frá Íslands­banka og til við­skipta­vin­ar­ins. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent