Vilhjálmur Vilhjálmsson, fyrrverandi forstjóri HB Granda, hefur dregið framboð sitt til stjórnarsetu í Eimskipafélags Íslands (Eimskip) til baka. Hann mun þess í stað bjóða sig fram til varastjórnar. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar Íslands sem birt var í morgun.
Vegna ákvörðunar hans verður sjálfkjörið í stjórn Eimskip á framhaldsaðalfundi sem fram fer 26. apríl næstkomandi, en fimm aðrir sóttust eftir setu í fimm manna stjórn félagsins.
Kjarninn greindi frá því 29. mars síðastliðinn að ekki hefði tekist að kjósa lögmæta stjórn í Eimskip á aðalfundi félagsins sem fram fór daginn áður. Vegna þess úrskurðaði fundarstjóri að fresta ætti aðalfundinum í allt að mánuð.
Viðmælendur Kjarnans úr hópi hluthafa sögðu að ástæðan hafi verið þrátefli vegna niðurstöðu kosninga milli þeirra sex einstaklinga sem sóttust eftir fimm aðalstjórnarsætum.
Tvær konur, Guðrún Blöndal og Hrund Rúdólfsdóttir, buðu sig fram og voru því í reynd sjálfkjörnar vegna laga um kynjakvóta í stjórnum félaga sem eru með fleiri en 50 starfsmenn sem segja að hlutfall hvors kyns í stjórn sé ekki undir 40 prósent.
Fjórir karlar sóttust síðan eftir þeim þremur stjórnarsætum sem eftir voru. Annars vegar var um að ræða Lárus L. Blöndal lögmann og Vilhjálm Vilhjálmsson, fyrrverandi forstjóra HB Granda, sem nutu stuðnings íslenskra lífeyrissjóða sem eiga samtals rúmlega helming allra hlutabréfa í Eimskip.
Hins vegar voru boðnir fram Baldvin Þorsteinsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Samherja og sonur Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra og eins eiganda Samherja, og Óskar Magnússon, sem gegnt hefur margskonar trúnaðarstörfum fyrir eigendur Samherja í gegnum tíðina og situr í stjórn fjölmarga félaga sem tengjast samstæðunni. Samherji, sem er stærsta útgerðarfélag landsins og er í ýmiss konar öðrum fjárfestingum í óskyldum greinum, á 27,1 prósent hlut í Eimskip og er stærsti einstaki eigandi félagsins.
Þrátefli milli lífeyrissjóða og Samherja
Samkvæmt upplýsingum Kjarnans fór stjórnarkjörið þannig að allir stærstu hluthafar félagsins settu atkvæði sín á karlanna fjóra sem voru í framboði, enda ljóst að konurnar tvær voru sjálfkjörnar hvernig sem fer. Niðurstaðan var sú að Lárus fékk flest atkvæði og Vilhjálmur næst flest. Baldvin, sem hefur verið stjórnarformaður Eimskips frá því í september í fyrra, lenti í þriðja sæti og Óskar í því fjórða. Hann neitaði hins vegar að víkja og því var ekki hægt að kjósa löglega stjórn sem uppfyllti skilyrði laga um kynjakvóta. Því þarf að halda framhaldsaðalfund innan mánaðar til að reyna aftur.
Viðmælendur Kjarnans sem áttu fulltrúa á fundinum sögðu að það hafi verið upplifun margra að Samherji væri að gera tilraun til þess að ná meirihluta í stjórninni á grundvelli 27,1 prósent eignarhluta félagsins. Lífeyrissjóðirnir hefðu hins vegar spyrnt á móti því og haft betur á aðalfundinum. Nú hefur annar þeirra stjórnarframbjóðenda sem hlaut flest atkvæðin, og naut stuðnings lífeyrissjóðanna, hins vegar dregið framboð sitt til baka.
Samherji með sterka stöðu í eigendahópnum
Samherji keypti um fjórðungshlut í Eimskip í fyrrasumar og í september 2018 var haldinn hluthafafundur til að kjósa nýja stjórn. Á þeim fundi tók Baldvin Þorsteinsson við stjórnartaumunum og Guðrún Blöndal var kjörin ný í stjórn. Þótt Guðrún byði sig fram sem óháður stjórnarmaður þá naut hún stuðnings Samherja í starfið í haust.
Nú er Óskar Magnússon sjálfkjörinn til stjórnarstarfa ásamt Baldvini, og því telja ýmsir viðmælendur Kjarnans sem tengjast stórum hluthöfum í Eimskip að Samherji sé að bæta við sig stjórnarmanni. Eftir það sé Samherji með meirihluta stjórnarmanna, varamann í stjórn og forstjóra félagsins, en í janúar síðastliðnum var Vilhelm Már Þorsteinsson, frændi stjórnarformannsins og eigenda Samherja, ráðinn í starf forstjóra Eimskips.