Flestir landsmenn ánægðir með frammistöðu Lilju

Flestir eru ánægðir með frammistöðu mennta- og menningarmálaráðherra og fæstir með frammistöðu Sigríðar Á. Andersen.

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Auglýsing

Flestir Íslend­ingar eru ánægðir með frammi­stöðu Lilju Alfreðs­dótt­ur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, eða 67,6 pró­sent. Fæstir eru ánægðir með frammi­stöðu Sig­ríðar Á. And­er­sen, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, eða 13,8 pró­sent. Þetta kemur fram í nýrri könnun Mask­ínu en Sig­ríður steig til hliðar stuttu áður en könn­unin var lögð fyr­ir.

Fleiri eru ánægðir en óánægðir með frammi­stöðu fimm af ell­efu ráð­herrum rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks. Þeir ráð­herrar eru Lilja Alfreðs­dótt­ir, Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra.

Mesta óánægjan er með störf Sig­ríðar Á. And­er­sen, eða 65,8 pró­sent og Bjarna Bene­dikts­son­ar, eða 51,6 pró­sent, og minnsta óánægjan er með frammi­stöðu Lilju Alfreðs­dótt­ur, eða 9,6 pró­sent.

Auglýsing

Í könn­un­inni kemur fram að almennt sé fleiri ánægðir með störf rík­is­stjórn­ar­innar nú en í lok árs 2018. Meiri ánægja sé með störf allra ráð­herr­anna nú, að utan­skil­inni Sig­ríði Á. And­er­sen. Mesta aukn­ing ánægju sé með mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra þótt fólk hafi verið ánægð­ast með Lilju í lok árs 2018.

Tölu­verður munur er á við­horfi til starfa ráð­herra eftir því hvaða flokk svar­endur myndu kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag. Þeir sem myndu kjósa VG eru ánægð­astir með þá ráð­herra sem koma úr flokkn­um, auk Lilju og það sama má segja um kjós­endur Sjálf­stæðs­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins sem almennt eru ánægðir með störf eigin ráð­herra.

Kjós­endur Pírata eru óánægð­ari en aðrir með störf Bjarna Bene­dikts­son­ar, Þór­dísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ur, Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar og Ásmundar Ein­ars Daða­son­ar. Þeir sem myndu kjósa Sam­fylk­ing­una eru óánægð­ari en aðrir með störf Sig­ríðar Á. And­er­sen, Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar og Guð­laugs Þórs Þórð­ar­son­ar.

Kynja­munur á við­horfi

Kynja­munur er á við­horfi til fjög­urra ráð­herra. Karlar eru ánægð­ari með frammi­stöðu Bjarna Bene­dikts­sonar en konur en konur eru ánægð­ari með frammi­stöðu Svan­dísar Svav­ars­dótt­ur, Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar og Guð­mundar Inga Guð­brands­son­ar.

Háskóla­mennt­aðir eru ánægð­ari en aðrir með störf Katrínar Jak­obs­dótt­ur, Lilju Alfreðs­dóttur og Guð­mundar Inga Guð­brands­son­ar. Jafn­framt eru háskóla­mennt­aðir óánægð­ari en aðrir með störf Sig­ríðar Á. And­er­sen.

Svar­endur voru 848 tals­ins, koma úr Þjóð­gátt Mask­ínu, sem er þjóð­hópur fólks sem er dreg­inn með til­viljun úr Þjóð­skrá og svarar á net­inu. Hver svar­andi gat svarað spurn­ingum um 7 ráð­herra af 11 en til­viljun réð um hvaða ráð­herra var spurt hverju sinni og í hvaða röð ráð­herr­arnir birt­ust svar­end­um.

Svar­endur eru af báðum kynj­um, alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Könn­unin fór fram dag­ana 15. til 27. mars 2019.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent