Kjarasamningur Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins var samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta í atkvæðagreiðslu. Starfsgreinasambandið hélt utan um sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu meðal átján félaga um nýjan samning, en AFL Starfsgreinafélag sá sjálft um sína atkvæðagreiðslu. Kjörsókn var í heildina 12,8 prósent.
Alls sögðu 80,06 prósent sögðu já við samningnum en 17,3 prósent sögðu nei. Þá tóku 2,61 prósent ekki afstöðu. Atkvæðagreiðslan stóð yfir á tímabilinu 12. til 23. apríl og voru 36.835 manns á kjörskrá.
Niðurstöður afgerandi í öllum félögum nema einu
Í fréttatilkynningu frá SGS segir að niðurstöðurnar hafi verið afgerandi í öllum félögunum nema einu en í 17 af 19 félögum var samningurinn samþykktur með yfir 70 prósent atkvæða.
Samningurinn á hinum almenna vinnumarkaði, sem undirritaðir voru 3. apríl síðastliðinn, telst því samþykktur hjá eftirfarandi félögum: AFLi Starfsgreinafélagi, Öldunni stéttarfélagi, Bárunni stéttarfélagi, Drífandi stéttarfélagi, Eflingu stéttarfélagi, Einingu-Iðju, Framsýn stéttarfélagi, Stéttarfélagi Vesturlands, Stéttarfélaginu Samstöðu, Verkalýðsfélagi Akraness, Verkalýðsfélagi Grindavíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis, Verkalýðsfélagi Snæfellinga, Verkalýðsfélagi Suðurlands, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga, Verkalýðsfélagi Þórshafnar, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis og Verkalýðsfélaginu Hlíf.