Ræða við Boeing um skaðabætur vegna Max-véla

Icelandair er með þrjár vélar kyrrsettar af 737 Max gerð.

boeingin.png
Auglýsing

Icelandair ætlar að ræða við flug­véla­fram­leið­and­ann Boeing og sækja skaða­bætur vegna kyrr­setn­ingar á 737 Max vélum fyr­ir­tæk­is­ins, en til hennar var gripið á alþjóða­vísu, í kjöl­far tveggja flug­slysa í Indónesíu og Eþíópu, sem leiddu til þess að allir um borð í Max vélum létu­st, sam­tals 346.

„Við höfum rætt við Boeing um að við munum þurfa að fara í slíkar við­ræð­ur,“ sagði Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelanda­ir, í sam­tali við frétta­stofu RÚV í dag

Icelandair hefur fest kaup á níu Max-­vélum frá Boeing, eins og greint hefur verið frá, en þrjár vélar eru nú kyrr­sett­ar. 

Auglýsing

Félagið reiðir sig á Max vélar í sínu leiða­kerfi og þjón­ustu til fram­tíð­ar, en sam­kvæmt til­kynn­ingu félags­ins þá miðar Icelandair við að Max vél­arnar komi aftur í notkun 16. júní.

Ekk­ert liggur þó fyrir um hvenær hægt verður að not­ast við flug­vél­arnar í alþjóða­flugi á nýjan leik, en Boeing sagði í til­kynn­ingu í gær, vegna upp­gjörs á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins, að Boeing hefði fullt traust á vél­un­um, þrátt fyrir slysin skelfi­legu.

Rann­sóknir á flug­slys­unum tveimur bein­ast meðal ann­ars að MCAS-­kerfi, sem á að sporna gegn ofrisi, en loka­nið­ur­stöður úr rann­sókn­unum á flug­slys­unum tveimur liggja ekki fyr­ir, frá flug­mála­yf­ir­völdum í Indónesíu og Eþíóp­íu.

Banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lagið PAR Capi­tal Mana­gement er nú orð­inn næst stærsti hlut­hafi Icelandair með 11,3 pró­sent hlut, eftir að hlut­hafa­fundur Icelandair sam­þykkti kaupin í gær. PAR Capi­tal er alþjóð­legur risi í ferða­þjón­ustu, og á meðal ann­ars eign­ar­hluti í Sout­hwest, Delta, Jet­blue, Trip Advis­or, Book­ing og Expedia.

Eigið fé Icelandair var 55 millj­arðar í árs­lok í fyrra og skuldir félags­ins námu 110 millj­örðum króna.

Fleiri félög hafa til­kynnt um við­ræður við Boeing vegna vanda Max véla. Norska félagið Norweg­ian hefur til­kynnt um að félagið ætli sér að semja við Boeing á nýjan leik - og jafn­vel sækja bætur - vegna stöð­unnar sem uppi er komin með Max vél­arn­ar. Félagið hefur fest kaup á alls 18 Max vél­um, og er ekk­ert flug­fé­lag í Evr­ópu með stærri pöntun af þeirri teg­und véla. Norweg­ian hefur nú samið um að fresta afhend­ingu á 14 Max vélum sem áttu að koma í flota félags­ins 2020 og 2021, að því er segir í frétt Seattle Times.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent