Aukin sjálfvirkni í atvinnulífi gæti þurrkað út helming starfa

Í nýrri skýrslu OECD segir að ríki þurfi að bregðast hratt við vegna aukinnar sjálfvirkni í atvinnulífi.

automation.jpg
Auglýsing

Aukin sjálf­virkni í atvinnu­lífi mun þurrka út allt að helm­ing starfa á næstu 20 árum og reynda á inn­viði sam­fé­laga með for­dæma­lausum hætti.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu OECD, en til hennar er vitnað í umfjöllun Bloomberg. Þar segir að þróun sem nú sé að eiga sér stað, þegar kemur að sjálf­virkni, meðal ann­ars með notkun gervi­greind­ar, muni breyta í grund­vall­ar­at­riðum hvernig gang­verk fram­leiðslu gengur fyrir sig.

Hér má sjá hvernig áhætta er metin eftir ríkjum, af því hvernig áhrifin verða af aukinni sjálfvirkni.

Auglýsing

Stefano Scarpetta, fram­kvæmda­stjóri mál­efna vinnu­mark­aðar hjá OECD, segir í við­tali við Bloomberg að þjóðir heims­ins þurfi að bregð­ast við með mun meira hraða heldur en nú þekkist, til að geta aðlagað sam­fé­lögin að breyttu lands­lagi þegar kemur að atvinnu­mark­aðn­um. Störf muni hverfa, önnur koma í stað­inn og mörg atriði sem snúi að menntun starfs­fólks á vinnu­mark­aði þurfi að breyt­ast.

Sam­kvæmt skýrslu OECD er það ekki síst staða ungs fólks og kvenna í lág­launa­störfum sem er við­kvæm, en talið er að aukin sjálf­virkni geti haft veru­lega mikil og hröð áhrif á atvinnu­mögu­leika margra sem þessum hópum til­heyra á næstu 10 til 20 árum. Til að ekki komi til mik­ils atvinnu­leysis og erf­ið­leika, þurfi að vinna að því að auka sveigj­an­leika vinnu­afls með auk­inni menntun og færni á þeim sviðum sem ný tækni og sjálf­virkni geti opnað á ný tæki­færi. 

Lilja Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­­ar­­mála­ráð­herra, hefur sagt að í ljósi fjórðu iðn­­­bylt­ing­­ar­innar og þeirrar sjálf­­virkn­i­væð­ingar sem sé fyrir dyrum þá þurfi Íslands að takast á við þær áskor­­anir að fjölga iðn- og tækn­i­­mennt­uðu fólki. 

Þetta kom meðal ann­ars fram í við­tali við hann Hring­braut í mars síð­ast­liðn­um.

Hún telur að sjálf­­virkn­i­væð­ingin verði góð fyrir fámenna þjóð eins og Ísland. „Það sem okkur hefur oft­­ast skort er vinn­u­afl. En núna þegar við erum komin með þessa tækni og við erum að fjár­­­festa í henni og við erum með mannauð­inn þá á okkur að vegna vel á næstu árum. En þá þurfum við að hafa öfl­­ugt mennta­­kerfi til að búa til þessa þekk­ingu. Og þess vegna er ég að segja að grunn­­ur­inn að þessu öllu eru kenn­­ar­­arnir í land­in­u,“ sagði Lilja.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent