Telur að sjálvirknivæðingin verði góð fyrir Ísland

Lilja Alfreðsdóttir segir að þjóð eins og Ísland, sem skorti oftast vinnuafl, muni njóta góðs af því þegar tækniframfarir stuðli að aukinni sjálfvirkni.

Lilja Alfreðsdóttir
Auglýsing

Lilja Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, segir að í ljósi fjórðu iðn­bylt­ing­ar­innar og þeirrar sjálf­virkni­væð­ingar sem sé fyrir dyrum þá þurfi Íslands að takast á við þær áskor­anir að fjölga iðn- og tækni­mennt­uðu fólki.

Hún telur að sjálf­virkni­væð­ingin verði góð fyrir fámenna þjóð eins og Ísland. „Það sem okkur hefur oft­ast skort er vinnu­afl. En núna þegar við erum komin með þessa tækni og við erum að fjár­festa í henni og við erum með mannauð­inn þá á okkur að vegna vel á næstu árum. En þá þurfum við að hafa öfl­ugt mennta­kerfi til að búa til þessa þekk­ingu. Og þess vegna er ég að segja að grunn­ur­inn að þessu öllu eru kenn­ar­arnir í land­in­u.“

Auglýsing
Þetta er meðal þess sem Lilja sagði í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unn­i. 

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.





Lilja sagði að Íslend­ingar þurfi hik­laust að grípa til aðgerða vegna þessa.

Þegar litið sé á þann fjölda  sem útskrif­ist starfs-, iðn- og tækni­grein­unum þá séu allt önnur hlut­föll hjá okkur en til að mynda á Norð­ur­lönd­unum og önnur ríki sem standi mjög fram­ar­lega í þessum mál­um. „Við ætlum að fjölga iðn­mennt­uðum og þeim sem eru í tækni­greinum og erum búin að vera að for­gangs­raða fjár­munum í þá veru. Við höfum verið að auð­velda aðgengi með því að fella niður efn­is­gjöld í þessum grein­um. En þarna þurfum við að gera meira.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent