Lilja segir afsögn Sigríðar hafa verið rétta ákvörðun

Varaformaður Framsóknarflokksins ætlar ekki að taka endanlega afstöðu til þess hvort að það eigi að áfrýja niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu fyrr en að búið sé að framkvæma og fara yfir hagsmunamat.

Lilja Alfreðsdóttir
Auglýsing

Lilja Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, telur að það hafi verið rétt ákvörðun hjá Sig­ríði Á. And­er­sen, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, að segja af sér emb­ætti í síð­ustu viku.

„Það sem hún ger­ir, og er auð­vitað hennar ákvörð­un, er að hún ákveður að stíga til hliðar til þess að skapa frið um það hvernig við förum í næstu skref. Ég tel að þetta hafi verið rétt hjá henni að gera þetta með þessum hætt­i.“

Þetta er meðal þess sem kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, við Lilju í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni. Þar ræddi hún nýlega nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu, rót­tækar breyt­ingar til að mæta kenn­ara­skorti, fjöl­miðla­frum­varpið sitt og margt fleira.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an:



Dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu um að það væri brot á mann­rétt­indum þeirra sem koma fyrir Lands­rétt að fjórir ólög­lega skip­aðir dóm­arar dæmi í málum þeirra hefur mik­illi spennu í íslensku sam­fé­lagi. Dóm­ar­arnir fjórir geta ekki dæmt og um tíma starf­aði Lands­réttur ekki.

Nú er hart tek­ist á um hvort hvort það eigi að reyna á að vísa nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins til efri deildar hans eða una nið­ur­stöð­unni og vinda sér í að eyða þeirri óvissu sem er til stað­ar.

Lilja sagði að fram undan væri hags­muna­mat á því hvað sé best að gera. Það mik­il­væg­asta væri að eyða þeirri óvissu sem sé til staðar um starf­semi Lands­rétt­ar. „En það er þannig að það mun taka tíma.“

Auglýsing
Það þurfi að hennar mati að fara yfir málið og átta sig á því hverjir kost­irnir séu við að áfrýja mál­inu. Við það þurfi sam­vinnu dóm­stóla, lög­gjaf­ar­valds og fram­kvæmda­valds. „Að mínu mati er réttar­ör­yggi og allt sem teng­ist dóm­stólum lands­ins er svo stórt mál að við verðum í sam­ein­ingu að nálg­ast þetta mál með þessum hætt­i.“

Lilja seg­ist hafa verið þeirrar skoð­unar að skyn­sam­leg­ast væri að áfrýja nið­ur­stöð­unni, en hún eigi eftir að sjá hags­muna­matið og hvernig það komi út. „Ég vil að við gerum þetta þannig að þetta liggi allt fyr­ir.“

Hennar end­an­lega afstaða mun síðan liggja fyrir að því loknu.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent