Atvinnuleysi stóð nokkurn veginn í stað frá fyrsta ársfjórðungi 2018. Mælt atvinnuleysi var 0,1 prósentustigi hærra á fyrsta ársfjórðungi 2019, sem er innan skekkjumarka. Hlutfall starfandi stóð einnig í stað frá síðasta ári. Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar.
Samkvæmt Hagstofunni reyndist atvinnuþátttaka á fyrsta ársfjórðungi 2019 vera að jafnaði 81 prósent af mannfjölda, eða að meðaltali um 205.700 manns. Þar af töldust að meðaltali 6.200 manns vera atvinnulausir eða um 3 prósent. Á sama tíma voru um 3.500 störf laus á íslenskum vinnumarkaði samkvæmt starfaskráningu Hagstofunnar eða um 1,5 prósent starfa, samanber áður útgefnar tölur. Atvinnulausir eru því um tvöfalt fleiri en fjöldi lausra starfa.
Um 48.900 mannst töldust utan vinnumarkaðar á fyrsta ársfjórðungi 2019. Um 30 prósent þeirra voru eftirlaunaþegar eða um 14.400 manns. Þar á eftir voru námsmenn, um 12.000 manns að meðaltali eða um fjórðungur.
Á fyrsta ársfjórðungi 2019 voru að jafnaði 183.100 manns á aldrinum 16 til 74 ára við vinnu í hverri viku ársfjórðungsins og var meðalheildarfjöldi vinnustunda þeirra 38,8 klukkustundir. Þeir sem voru í fullu starfi unnu þó ívið meira eða að meðaltali um 44 stundir í viðmiðunarvikunni, en heildarfjöldi vinnustunda í hlutastarfi var að meðaltali um 22,6 klukkustundir.