Áttatíu prósent skráðra eigna hjá Airbnb eru á höfuðborgarsvæðinu staðsettar í Reykjavík og 37 prósent í 101 Reykjavík. Sautján prósent eru í 105 Reykjavík og sjö prósent í 107 Reykjavík. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar á áhrifum Airbnb á húsnæðismarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu sem birtar voru í dag.
Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar hýsir miðborgin og næsta nágrenni yfir 60 prósent skráðra eigna. Þær götur sem hafa flestar Airbnb eignir á skrá eru Laugavegur, Hverfisgata, Grettisgata, Berþórugata, Óðinsgata og Bjarnarstígur en allt að 70 prósent eigna í þessum götum eru skráðar hjá Airbnb. Í apríl 2019 voru 2.567 eignir í Reykjavík skráðar á Airbnb og þar af voru 58 prósent starfræktar án lögbundins leyfis.
Í niðurstöðunum kemur meðal annars fram að fjöldi skráðra eigna hjá Airbnb hafi margfaldast á höfuðborgarsvæðinu á síðastliðnum árum, til að mynda var tvöföldun á tímabilinu janúar 2016 til janúar 2018 þegar skráðum eignum fjölgaði úr 2032 í 4154. Um þrjár af hverjum fjórum skráðum eignum í Reykjavík eru heilar eignir, þ.e. íbúðir og hús, sem er hærra hlutfall en í flestum öðrum fjölsóttum borgum Evrópu.
Frekar ýtt undir félagslegan ójöfnuð
Í apríl 2019 voru 58 prósent skráðra eigna Airbnb í Reykjavík starfræktar án lögbundins leyfis. Í fréttatilkynningu frá Reykjavíkjurborg kemur fram að Airbnb og stuttir leigusamningar virðast frekar hafa ýtt undir félagslegan ójöfnuð á höfuðborgarsvæðinu.
Í rannsókninni kemur enn fremur fram að leigusalar séu ekki einsleitur hópur með einsleit markmið eða viðskiptaaðferðir og áhrifin eftir því ólík. Á meðan sum viðskiptamódel hafi fært eignarhald frá heimilum til fjárfesta og viðskipta, hafi önnur hjálpað íbúum að halda í heimili sín og/eða eiga fyrir lífsnauðsynjum.
Ein af megin niðurstöðum rannsóknarinnar er sú að Airbnb og stuttir leigusamningar virðast þó frekar ýta undir félagslegan ójöfnuð. Starfsemin geti skapað fjárhagsleg tækifæri fyrir þá sem þegar eiga eignir og þannig treyst enn betur stöðu þeirra á húsnæðismarkaði. Hins vegar séu afleiðingarnar minna framboð og hærra verð sem geri þeim sem eru á höttunum eftir að eignast heimili til kaups eða leigu erfiðara fyrir.