Hagnaður samstæðu Arion banka á fyrstu þremur mánuðum þessa árs nam einum milljarði króna. Á sama tímabili í fyrra var hagnaðurinn 1,9 milljarðar.
Arðsemi eiginfjár var 2,1 prósent, í samanburði við 3,6 prósent á sama tíma í fyrra, en svo lítil arðsemi telst lág fyrir bankarekstur, í alþjóðlegum samanburði.
Slæm afkoma dótturfélags bankans, Valitor, hefur neikvæð áhrif á rekstur bankans, en bókfært virði félagsins hefur lækkað um 1,6 milljarð frá áramótum, af því er fram kemur í uppgjörinu. Það var 15,7 milljarðar í árslok í fyrra en var í lok mars 14,1 milljarður.
Samkvæmt uppgjörinu var tap Valitor á fyrstu þremur mánuðum ársins 1,2 milljarðar króna.
Arðsemi eigin fjár að Valitor undanskildu var 6,2 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2019 samanborið við 4,8 prósent á sama tímabili árið 2018. Valitor er skilgreint sem eign til sölu.
Heildareignir námu 1.223 milljörðum króna í lok mars 2019 samanborið við 1.164 milljarða króna í árslok 2018 og eigið fé nam 193 milljörðum króna, samanborið við 201 milljarð króna í árslok 2018.
Arion banki greiddi 10 milljarða króna í arð á fyrsta ársfjórðungi 2019, sem samsvarar 5 kr. á hlut.
Stefán Pétursson, starfandi bankastjóri, segir í yfirlýsingu að fjárhagsstaða bankans sé sterk sem fyrr. Hann segir að ætlunin sé að selja Valitor að hluta eða að öllu leyti, og að framundan séu fundir með mögulegum kaupendum sem hafa sýnt félaginu áhuga.
„Fjárhagsstaða bankans er sem fyrr afar sterk og voru á tímabilinu tekin mikilvæg skref í að ná fram hagstæðari fjármagnsskipan. Aðalfundur samþykkti lækkun á hlutafé til jöfnunar á eigin hlutum bankans, sem átti um 9,3% hlutafjár, og arðgreiðslu sem samsvarar 5 krónum á hlut eða rúmum 9 milljörðum króna. Þessar aðgerðir hafa verið framkvæmdar og eru mikilvægur liður í bankinn nái fjárhagslegum markmiðum sínum til næstu 3-5 ára.
Arion banki skrifaði nýverið undir yfirlýsingu um að fylgja sex nýjum meginreglum UNEP FI um ábyrga bankastarfsemi. UNEP FI er vettvangur umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna og yfir 240 fyrirtækja og stofnana í fjármálageiranum víðs vegar um heim. Við munum nýta okkur þennan vettvang og horfa til meginreglnanna í okkar vegferð varðandi ábyrga bankastarfsemi og sjálfbærni, en markmið meginreglnanna er að tengja starfsemi banka við alþjóðleg viðmið og skuldbindingar á borð við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og Parísarsamkomulagið.
Eins og kunnugt er þá er dótturfélag Arion banka, Valitor, sem er öflugt alþjóðlegt fyrirtæki á sviði greiðslumiðlunar með starfsemi á Íslandi, Bretlandi og í Danmörku, í söluferli og er ætlunin að selja félagið að hluta eða fullu. Nauðsynlegur undirbúningur er vel á veg kominn og gerum við ráð fyrir fyrstu fundum með væntanlegum kaupendum á næstu vikum. Væntum við þess að niðurstaða fáist í söluferlið á þessu ári. Nýlegur dómur Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem félagið var dæmt til að greiða 1,2 milljarða króna í skaðabætur, hefur ekki áhrif á söluferli félagsins. Í apríl samdi Valitor á ný við Stripe, til tveggja ára, en félagið er eitt af fremstu fyrirtækjum á sviði fjártækni í heiminum,“ segir Stefán í yfirlýsingu.