Búið að banna það sem var ráðandi í bönkum fyrir hrun

Forstjóri FME segir að það sé búið að gera mjög mikilvægar breytingar á lagaumhverfi banka frá því sem var fyrir hrun. Bónusar eru takmarkaðir, eiginfjárkröfur mun hærri, bannað að lána til stjórnenda eða eigenda og ekki hægt að taka veð í eigin bréfum.

Unnur Gunnarsdóttir forstjóri FME í 21 8. maí klippa 1
Auglýsing

Unnur Gunn­ars­dótt­ir, for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins segir að Ísland sé vel í stakk búið til að takast á við aukið frjáls­ræði á fjár­mála­mark­aði, sem felur meðal ann­ars í sér að stærri hluti banka verði í einka­eigu.

„Það verður að segj­ast eins og er að þessi ára­tugur sem við höfum verið í eftir áfallið hefur auð­vitað verið óvenju­leg­ur. Það er ekki kannski eðli­legt ástand eða fyr­ir­komu­lag að svona stór hluti af fjár­mála­kerf­inu sé í eigu rík­is­ins. Þannig að þetta er heil­brigð og eðli­leg þróun að við séum farin að sjá þessar hreyf­ingar og að það sé áhugi á eign­ar­haldi í íslenskum fjár­mála­fyr­ir­tækj­u­m.“

Þetta segir hún í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut sem er á dag­skrá klukkan 21:00 í kvöld.

Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neð­an:

Unnur segir þar að búið sé að breyta gíf­ur­lega miklu í laga- og reglu­verki fjár­mála­fyr­ir­tækja frá því sem var fyrir hrun. Allur heim­ur­inn hafi verið í mjög hraðri lær­dóm­skúrfu til að fyr­ir­byggja að hlutir eins og síð­asta stóra fjár­málakreppa geti gerst aft­ur. Þá sé oft gagn­rýnt að allur fókus sé á að fyr­ir­byggja áfall eins og varð síð­ast, þegar næsta áfall geti verið allt ann­ars eðl­is­.  

Hún nefnir nokkur atriði sem voru ráð­andi í því að hrunið varð jafn afdrifa­ríkt haustið 2008, sem nú er búið að koma í veg fyrir að geti end­ur­tekið sig með breyt­ingum á lögum og regl­um. „Það eru komnar þessar miklu eig­in­fjár­kröfur sem að Fjár­mála­eft­ir­litið fylgir eftir og hefur vald­heim­ildir til þess að gera kröfu um. Fyrir hrun var eig­in­fjár­krafan átta pró­sent. Núna er hún í kring­um, og jafn­vel yfir 20 pró­sent, og af meiri gæð­um. Það eru tak­mark­anir varð­andi til dæmis tengda aðila. Það var erfitt að sanna að það væri verið að taka mikla áhættu með tengda aðila. Núna er búið að snúa sönn­un­ar­byrð­inni við í íslenskum völd­um.“

Auglýsing
Þá sé líka búið að taka á hinum klass­íska freistni­vanda sem getur skap­ast innan fjár­mála­kerf­is­ins. Á honum sé búið að gera mjög mik­il­vægar breyt­ing­ar. „Það er þrennt sem mig langar að nefna með það. Það eru þessar alræmdu kaupauka­regl­ur. Það er ekki vin­sælt að það megi ekki greiða yfir 25 pró­sent af árs­launum í bónusa í fjár­mála­kerf­inu. Það eru mjög miklar tak­mark­anir hvað má lána eig­end­um, stjórn­endum og stjórn­ar­mönnum innan úr sínu fyr­ir­tæki. Í þriðja lagi, það sem var mikið vanda­mál fyrir hrun að það var verið að lána til dæmis til hluta­bréfa­kaupa í bank­anum sjálfum með veði í hluta­bréfum í bank­anum sjálf­um. Þetta er alveg harð­bannað núna og fram­fylgjum þessu alveg og fylgj­umst með. Þetta eru mjög mik­il­vægar breyt­ing­ar.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent