Katrín: Þetta snýst um sjálfsákvörðunarrétt og sjálfstæði kvenna

Forsætisráðherra hafnaði því alfarið að um pólitísk hrossakaup væri að ræða. Umræða um málið stendur nú yfir.

Þungunarrof - Pallar 13. maí 2019
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra, sagði það af og frá, að ein­hver póli­tísk hrossa­kaup hefðu verið gerð, í tengslum við þung­un­ar­rofs­frum­varp­ið, en umræða um það var nokkuð heit á Alþingi í dag. Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, hélt því fram að póli­tísk hrossa­kaup hefðu átt sér stað, þar sem stjórn­ar­flokk­arnir hefðu sam­mælst um stuðn­ing við orku­pakka­málið og síðan þung­un­ar­rofs­frum­varp­ið, til að lægja öldur í eigin bak­land­i. 

Katrín sagði málið vera grund­vall­ar­mál.

„Það er alrangt sem hátt­virtur þing­maður gefur í skyn að um svona grund­vall­ar­mál eigi sér hrossa­kaup af nokkru tagi. Það er bara ekki svo­leið­is, virðu­legi for­seti [...] Því það snýst um rétt­indi kvenna yfir sínum eigin lík­ama og konur verða aldrei sjálf­stæðar nema að þau hafi þau rétt­ind­i,“ sagði Katrín í umræðum um mál­ið.

Auglýsing

Katrín Jakobsdóttir Mynd: Bára Huld Beck

Alþingi felldi til­lögu Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son, for­manns Mið­flokks­ins, en hann lagði til að frum­varpið yrði tekið af dagsa þings­ins. Var til­lagan felld með yfir­gnæf­andi meiri­hluta, 44 at­­kvæðum gegn 16. 

Fjöldi kvenna hefur fylgst með umræðum um málið á þing­pöll­un­um. 

Verði frum­varp Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra að lögum verður þung­un­ar­rof heim­ilt fram á 22. viku með­göngu, óháð því hvaða ástæður liggja að baki. 

Sam­kvæmt núgild­andi lögum er það heim­ilt til loka 16. viku og heim­ild er til þess eftir 16 vikur við vissar aðstæð­ur. Umræða um málið stendur nú yfir, og hægt er að fylgj­ast með því beint hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent