Miðstjórn ASÍ harmar viðbrögð þeirra atvinnurekenda sem í kjölfar nýgerðra kjarasamninga hafa gripið til uppsagna á launakjörum starfsmanna sinna að sögn vegna þess kostnaðarauka sem til kemur vegna gildistöku samninganna.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ. Í ályktun miðstjórnarinnar segir meðal annars að einhliða riftun á samningum komi til greina, ef atvinnurekendur ætla ekki að standa við samninga.
„Miðstjórn leggur áherslu á, að aðilar vinnumarkaðarins semja og gera kjarasamninga í góðri trú um að við undirritun þeirra verði af báðum aðilum unnið að staðfestingu þeirra og í framhaldinu að því að hrinda þeim í framkvæmd skv. efni sínu. Þeir atvinnurekendur sem gripið hafa til uppsagna á ráðningarkjörum starfsmanna sinna nú í kjölfar undirritunar og samþykkis kjarasamninga ganga gegn markmiðum samninganna og lýsa því beinlínis yfir að þeir hyggist ekki efna þá. Miðstjórn ASÍ skorar á viðkomandi atvinnurekendur að draga nú þegar til baka allar uppsagnir byggðar á framangreindum forsendum. Jafnframt áskilur ASÍ öllum aðildarsamtökum sínum rétt til þess að lýsa yfir einhliða riftun nýgerðra kjarasamninga við þessa sömu atvinnurekendur vegna þess ásetnings þeirra að ætla sér ekki að virða þá og hrinda í framkvæmd,“ segir í ályktuninni.
Auk þess segir að ASÍ áskilji sér rétt til þess að hefja aðgerðir til þess að „knýja á um gerð nýs kjarasamnings við viðkomandi aðila og beita til þess öllum tiltækum og lögmætum þvingunaraðgerðum til þess að knýja á um gerð þeirra, þar með talið með verkföllum.“
Nokkuð hefur borið á uppsögnum hjá fyrirtækjum að undanförnu. Sérstaklega á það við um fyrirtæki í ferðaþjónustu, en mikill samdráttur hefur verið í greininni undanfarin misseri, eftir fall WOW air. Í apríl komu 18 prósent færri ferðamenn til landsins heldur en á sama tíma í fyrra, og ný hagvaxtarspá Hagstofu Íslands gerir ráð fyrir 0,2 prósent samdrætti í landsframleiðslu á þessu ári, samanborið við 4,6 prósent hagvöxt í fyrra.