Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, fjallaði á Alþingi í dag um nýlega niðurstöðu siðanefndar þingsins þar sem fram kemur að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður flokksins, hafi gerst sek um brot á siðareglum þingmanna með orðum sínum í Silfrinu og á Facebook-síðu sinni sem vörðuðu akstursgreiðslur Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.
„Í sama áliti kemur fram að ég hafi ekki gerst sekur um brot á siðareglum af því er virðist af því að siðanefnd skildi mig ekki. Þau orð sem ég lét falla voru efnis- og innihaldslega nákvæmlega þau sömu og háttvirtur þingmaður Þórhildur Sunna Ævarsdóttir var dæmd brotleg fyrir,“ sagði Björn Leví í pontu.
Hann sagði að vissulega hefði hann ekki notað nákvæmlega sömu orðin og að það gæti vel verið að það skipti máli þegar siðanefnd legði mat sitt á merkingu orðanna.
Vildi nota orð sem allir skildu
„Forseti, mig langar því að vera eins skýrmæltur og ég get vegna álits forsætisnefndar þegar erindi mínu um endurgreiðslur vegna aksturskostnaðar var vísað frá þar sem kom fram að Ásmundur Friðriksson hafði vissulega fengið endurgreiðslu frá Alþingi vegna þáttagerðar fyrir ÍNN. Að hann hafði fengið endurgreiðslur fyrir notkun á eigin bíl þrátt fyrir að það var gegn reglum um slíkar endurgreiðslur og vegna þess að Ásmundur játaði að hafa fengið endurgreiðslur vegna prófkjörsbaráttu í eigin flokki sem er klárlega ekki hluti af starfi hans sem þingmanns,“ sagði Björn Leví.
Hann vildi þess vegna tjá skoðun sína aftur, og nota orð sem allir skildu, þar á meðal siðanefnd. „Nú er rökstuddur grunur um það að Ásmundur Friðriksson hafi dregið að sér fé, almannafé, og við erum ekki að sjá viðbrögð þess efnis að það sé verið að setja á fót rannsókn í þeim efnum. Ég segi þessi orð með fullri vitneskju um að þau hafi verið dæmd sem brot gegn siðareglum þingmanna. Við vitum það hinsvegar öll hérna inni að þau eru sönn,“ sagði hann.
Björn Leví taldi að fyrir því lægi játning og staðfesting við frávísun forsætisnefndar. Þess vegna væri þetta rökstuddur grunur í allri merkingu þeirra orða.
Ummælin stappað nærri því að vera vítaverð
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, greip fram í fyrir Birni Leví og sagði að hann teldi að notkun dagskrárliðarins væri ekki við hæfi, þ.e. störf þingsins.
Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, kom í púlt nokkru seinna og tjáði sig um ræðu Björns Levís. „Ég tel nú að ummælin hafi nú stappað nærri að vera vítaverð eins og þingsköp kveða á um. Ekki eingöngu vegna þess að í þeim fólst endurtekning á aðdróttunum og ærumeiðingum í garð háttvirts þingmanns, Ásmundar Friðrikssonar.
Heldur líka vegna þess að það er auðvitað verið að gera lítið úr þeirri málsmeðferð sem átt hefur sér stað hér á vegum þingsins, bæði af hálfu háttvirtrar forsætisnefndar og siðanefndar og ég verð að segja að mér finnst afar sérkennilegt að háttvirtur þingmaður Pírata, Björn Leví Gunnarsson, gangi fram með þeim hætti í ljósi allrar forsögu málsins og hvað það hefur fengið mikla umfjöllun og hvernig þessum ásökunum hans og fleiri hefur verið svarað,“ sagði hann.
Mannasiðir að láta viðkomandi þingmann vita
Þegar Steingrímur var spurður nánar út í málið þá sagði hann að undir liðnum „störf þingsins“ væri sérstaklega gert ráð fyrir því að þingmenn gætu átt orðaskipti við hvorn annan. Þeir gætu beint spurningu eða snúið máli sínu að öðrum þingmanni. „En þá eru það mannasiðir að láta viðkomandi þingmann vita. Og þá er hann settur á mælendaskrá næstur á eftir þeim sem á orðastað við hann. Þetta gerði háttvirtur þingmaður, Björn Leví Gunnarsson, ekki,“ sagði hann.
„Hann notaði dagskrárliðinn „störf þingsins“ til þess að fara mjög ósæmilegum orðum um annan háttvirtan þingmann,“ sagði Steingrímur.