Icelandair gerir ráð fyrir að kyrrsetningin á Max-vélunum vari lengur

Óvíst er hvenær 737 Max vélin frá Boeing fer í loftið. Nú er gert ráð fyrir kyrrsetningu, til að minnsta kosti 15. september, segir í tilkynningu Icelandair.

Icelandair vél feb 2008
Auglýsing

Icelandair hefur nú upp­fært flug­á­ætlun sína fram til 15. sept­em­ber nk. þar sem útlit er fyrir að kyrr­setn­ing Boeing 737 MAX flug­véla muni vara lengur en áður hafði verið áætl­að.

Í til­kynn­ingu til kaup­hallar segir að sæta­fram­boð félags­ins muni drag­ast saman um 5 pró­sent til við­bót­ar, frá 15. júlí til 15. sept­em­ber, frá því sem áætlað var, en áður hafði félagið til­kynnt um sam­drátt upp á 2 pró­sent í sæta­fram­boði.

Eins og fram hefur komið hefur félagið nú þegar tekið þrjár leigu­vélar í notkun til þess að lág­marka áhrif kyrr­setn­ing­ar­innar á far­þega. Þessu til við­bótar er unnið að loka­frá­gangi  samn­ings um leigu á einni Boeing 767-300 vél til við­bót­ar.

Auglýsing

Eftir breyt­ing­una er fram­boðs­aukn­ing milli ára á þessu tíma­bili samt sem áður 10 pró­sent, segir í til­kynn­ingu.

Vinna varð­andi þessar breyt­ingar mun hefj­ast á næstu dögum og munu starfs­menn Icelandair hafa sam­band við við­kom­andi far­þega.

„Fjár­hags­leg áhrif kyrr­setn­ing­ar­innar eru óviss á þessu stigi, m.a. vegna þess að ekki liggur fyrir hversu mikið af þeim kostn­aði sem hlýst af kyrr­setn­ing­unni fæst bættur frá fram­leið­anda,“ segir í til­kynn­ingu frá Boein­g. 

Eins og greint var frá á vef Kjarn­ans fyrr í dag, hefur verið fundað í Tex­ast í Banda­ríkj­unum í dag, þar sem full­trúar flug­mála­yf­ir­valda í heim­inum hafa fengið upp­lýs­ingar frá Boeing um upp­færslu á hug­bún­aði í vél­un­um. Ekk­ert liggur fyrir um hvenær kyrr­setn­ingu á vél­unum verður aflétt, en banda­rísk flug­mála­yf­ir­völd hafa sagt, að það verði ekki gert fyrr en öryggi vél­anna sé trygg­t. 

Kyrr­setn­ingin var ákveð­in, eftir tvö flug­slys, 29. októ­ber í fyrra í Indónesíu og 13. mars í Eþíóp­íu, þar sem 346 létu­st, allir um borð. Rann­sóknir hafa beinst að MCAS kerfi í 737 Max vél­un­um, sem á að sporna gegn ofrisi, en loka­nið­ur­stöður liggja ekki fyr­ir.

Mark­aðsvirði Icelandair er nú 54,3 millj­arðar króna, en félagið tap­aði sam­tals 13,5 millj­örðum króna á síð­ustu þremur mán­uðum síð­asta árs og fyrstu þremur mán­uðum þessa árs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent