Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur ákveðið að hækka breytilega vexti verðtryggðra lána til sjóðsfélaga frá og með 1. ágúst næstkomandi úr 2,06 prósentum í 2,26 prósent.
Vextir sjóðsins nú eru þeir lægstu sem standa íbúðakaupendum á Íslandi til boða. Eftir breytinguna munu bæði Frjálsi lífeyrissjóðurinn (2,15 prósent) og Almenni lífeyrissjóðurinn (2,18 prósent) bjóða sínum félögum upp á lægri breytileg vaxtakjör á verðtryggðum lánum.
Í staðinn fyrir að ávöxtunarkrafa ákveðins skuldabréfaflokks stýri því hverjir vextirnir eru mun stjórn sjóðsins ákveða þá. Frá þessu er greint í frétt á vef Lífeyrissjóðs verzlunarmanna.
Vextir hafa lækkað skarpt
Frá því að sjóðurinn hóf endurkomu sína inn á íbúðalánamarkað að alvöru haustið 2015, með því að hækka veðhlutfall lána, lækka vexti og lækka lántökugjald, hafa vextir lána hans ákvarðast í samræmi við breytingu á ávöxtunarkröfu ákveðins skuldabréfaflokks Íbúðalánasjóðs (HFF150434.). Á undanförnum árum hafa viðskipti með þau bréf dregist verulega saman með þeim afleiðingum að ávöxtunarkrafan hefur dregist mikið saman.
Afleiðing þess hefur verið sú að vextir Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hafa lækkað mjög mikið á skömmum tíma. Haustið 2015 voru vextir á breytilegum verðtryggðum lánum sjóðsins til að mynda 3,6 prósent en þeir eru nú 2,06 prósent og hafa aldrei verið lægri. Vextirnir í dag eru því 42,7 prósent lægri en árið 2015.
Stærstu lífeyrissjóðir landsins hafa allir reynt að draga úr eftirspurn í íbúðalán hjá sér undanfarin misseri, m.a. með því að lækka veðhlutfall úr 75 í 70 prósent. Lífeyrissjóður verzlunarmanna gerði það strax vorið 2017.
Bankarnir ekki samkeppnishæfir
Þeir sem eiga rétt á að taka íbúðalán hjá lífeyrissjóðum landsins eru þó enn í mun betri stöðu en þeir sem þurfa að taka lán hjá viðskiptabönkunum. Ef íbúðarkaupanda dugar að fá 70-75 prósent lán þá getur hann tekið slík hjá lífeyrissjóðum sem hann hefur greitt til og fengið breytilega verðtryggða vexti sem eru frá 2,96 prósent (Gildi) til 2,06 prósent (Lífeyrissjóður verzlunarmanna) eins og staðan er í dag.
Viðskiptabankarnir þrír bjóða hins vegar upp á hærra veðhlutfall, eða 80 til 85 prósent af virði þeirrar eignar sem verið er að kaupa. Íslandsbanki býður upp á lægstu breytilegu verðtryggðu vextina upp að 70 prósent af virði fasteignar, sem eru 3,40 prósent. Ef viðkomandi þarf að taka hærra lán þá þarf hann að bæta við sig viðbótarláni á hærri vöxtum. Þannig er málum einnig háttað hjá Landsbankanum og Arion banka.