Lífeyrisjóður verzlunarmanna hækkar verðtryggða vexti og breytir viðmiði

Einn stærsti lífeyrissjóður landsins sem býður nú upp á lægstu mögulegu íbúðalánavexti hefur ákveðið að breyta því hvernig hann ákvarðar vextina. Héðan í frá mun stjórn sjóðsins gera það. Og fyrsta ákvörðun er að hækka vextina um tæplega tíu prósent.

Kjör sem standa íbúðakaupendum sem borga í Lífeyrissjóðverzlunarmanna til boða munu versna um komandi mánaðarmót.
Kjör sem standa íbúðakaupendum sem borga í Lífeyrissjóðverzlunarmanna til boða munu versna um komandi mánaðarmót.
Auglýsing

Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna hefur ákveðið að hækka breyti­lega vexti verð­tryggðra lána til sjóðs­fé­laga frá og með 1. ágúst næst­kom­andi úr 2,06 pró­sentum í 2,26 pró­sent.

Vextir sjóðs­ins nú eru þeir lægstu sem standa íbúða­kaup­endum á Íslandi til boða. Eftir breyt­ing­una munu bæði Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn (2,15 pró­sent) og Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn (2,18 pró­sent) bjóða sínum félögum upp á lægri breyti­leg vaxta­kjör á verð­tryggðum lán­um.

Í stað­inn fyrir að ávöxt­un­ar­krafa ákveð­ins skulda­bréfa­flokks stýri því hverjir vext­irnir eru mun stjórn sjóðs­ins ákveða þá. Frá þessu er greint í frétt á vef Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna.

Auglýsing

Vextir hafa lækkað skarpt

Frá því að sjóð­ur­inn hóf end­ur­komu sína inn á íbúða­lána­markað að alvöru haustið 2015, með því að hækka veð­hlut­fall lána, lækka vexti og lækka lán­töku­gjald, hafa vextir lána hans ákvarð­ast í sam­ræmi við breyt­ingu á ávöxt­un­ar­kröfu ákveð­ins skulda­bréfa­flokks Íbúða­lána­sjóðs (HFF150434.). Á und­an­förnum árum hafa við­skipti með þau bréf dreg­ist veru­lega saman með þeim afleið­ingum að ávöxt­un­ar­krafan hefur dreg­ist mikið sam­an.

Afleið­ing þess hefur verið sú að vextir Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna hafa lækkað mjög mikið á skömmum tíma. Haustið 2015 voru vextir á breyti­legum verð­tryggðum lánum sjóðs­ins til að mynda 3,6 pró­sent en þeir eru nú 2,06 pró­sent og hafa aldrei verið lægri. Vext­irnir í dag eru því 42,7 pró­sent lægri en árið 2015.

Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa allir reynt að draga úr eft­ir­spurn í íbúða­lán hjá sér und­an­farin miss­eri, m.a. með því að lækka veð­hlut­fall úr 75 í 70 pró­sent. Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna gerði það strax vorið 2017.

Bank­arnir ekki sam­keppn­is­hæfir

Þeir sem eiga rétt á að taka íbúða­lán hjá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins eru þó enn í mun betri stöðu en þeir sem þurfa að taka lán hjá við­skipta­bönk­un­um. Ef íbúð­ar­kaup­anda dugar að fá 70-75 pró­sent lán þá getur hann tekið slík hjá líf­eyr­is­sjóðum sem hann hefur greitt til og fengið breyti­lega verð­tryggða vexti sem eru frá 2,96 pró­sent (Gildi) til 2,06 pró­sent (Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna) eins og staðan er í dag.

Við­skipta­bank­arnir þrír bjóða hins vegar upp á hærra veð­hlut­fall, eða 80 til 85 pró­sent af virði þeirrar eignar sem verið er að kaupa. Íslands­banki býður upp á lægstu breyti­legu verð­tryggðu vext­ina upp að 70 pró­sent af virði fast­eign­ar, sem eru 3,40 pró­sent. Ef við­kom­andi þarf að taka hærra lán þá þarf hann að bæta við sig við­bót­ar­láni á hærri vöxt­um. Þannig er málum einnig háttað hjá Lands­bank­anum og Arion banka.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent