Fjórir stjórnarandstöðuflokkar, Viðreisn, Píratar, Samfylkingin og Flokkur fólksins, leggja til að flokkarnir á Alþingi semji um afgreiðslu þeirra mála sem bíða og að innleiðing þriðja orkupakkans, sem að Miðflokkurinn hefur haldið uppi umræðu um dögum saman, verði færð aftast á dagskrá þessa þings.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá flokkunum fjórum.
„Undanfarnar vikur hefur staðið yfir málþóf níu þingmanna Miðflokksins um þriðja orkupakkann sem komið hefur í veg fyrir þinglega meðferð allra annarra mála. Það er gagnrýnivert að mörg stór mál ríkisstjórnarinnar hafa komið allt of seint fram, þar á meðal innleiðing þriðja orkupakkans, auk þess sem enn er beðið eftir nýrri fjármálastefnu og breyttri fjármálaáætlun,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.
Þá segir að þetta hafi þær alvarlegu afleiðingar, að mörg „gríðarlega mikilvæg mál“ bíði afgreiðslu og vandséð hvenær þau fái þinglega meðferð.
„Stjórnarmeirihlutanum hefur mistekist algjörlega að höggva á þennan hnút,“ segir í yfirlýsingunni, og er þar vísað til Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.
„Undir liggja miklir hagsmunir almennings og ótækt annað en að þingmenn, hvar í flokki sem þeir standa, fái tækifæri til að sinna þessum verkefnum í þágu kjósenda af fullum krafti,“ segir í yfirlýsingunni.