Bjarg íbúðafélag hyggst byggja 80 íbúðir á Kirkjusandi.
Íbúðirnar verða í átta húsum sem Þingvangur hefur tekið að sér að byggja fyrir Bjarg íbúðafélag við Hallgerðargötu á Kirkjusandi. Íbúðirnar verða af ýmsum stærðum og leggur Reykjavíkurborg fram lóðina sem stofnframlag til Bjargs en ríkið styrkir einnig uppbygginguna með 18 prósent stofnframlagi.
ASK arkitektar teiknuðu húsin sem verða byggð úr steypu og timbri. Félagsbústaðir munu eiga og leigja út 20 prósent íbúða í húsunum í Hallgerðargötu á móti Bjargi íbúðafélagi.
„Kirkjusandur er ákaflega vel staðsett svæði og er útivistargildi svæðisins mikið og gott aðgengi að strandlengjunni og Laugardal. Hallgerðargata á tengist gömlum og rótgrónum hverfum á Teigunum og Lækjunum. Stutt er í alla verslun og þjónustu, t.d. Laugardalslaug, Skautahöllina, Grasagarðinn, Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, Safn Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnestanga og Sólheimabókasafn,“ segir í tilkynningu frá Bjargi.
Fulltrúar Bjargs og verkalýðsfélaganna ásamt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og fulltrúum frá Þingvangi tóku skóflustunguna í gær en framkvæmdir við íbúðirnar hefjast strax.
Bjarg íbúðafélag er með
563 íbúðir í byggingu þar af 499 í Reykjavík
og verður flutt inn í fyrstu íbúðirnar við Móaveg í sumar en það var fyrsta byggingarframkvæmd Bjargs.