Framlög Íslands til varnarmála hækkuðu um 37 prósent í fyrra

Aukning á framlögum til varnarmála úr ríkissjóði frá árinu 2017 nær 593 milljónum króna.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra
Auglýsing

Fram­lög Íslands til varn­ar­mála árið 2019 eru 2.185 millj­ónir króna miðað við 1.592 millj­ónir króna árið 2017. Þetta kemur fram í skýrslu ut­an­rík­is­ráð­herra um utan­rík­is­mál og alþjóða­mál sem lögð var fyrir Alþingi í apríl 2019.

Í svari frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarn­ans kom fram að auknar fjár­heim­ildir mála­flokks­ins megi skýra að mestu af fjórum verk­efn­um: 127 millj­ónir króna voru veittar til­ end­ur­nýj­unar á rat­sjár­kerfi og stjórn­stöðv­ar­kerfi. Alls 60 millj­ónir króna fóru í að efla ­samn­ings­bund­inn gisti­ríkja­stuðn­ing og 50 millj­ónir króna megi svo rekja til reglu­bund­inna varnaræf­inga í sam­ræmi við varn­ar­á­ætlun Atl­ants­hafs­banda­lags­ins. Að lokum voru 35 millj­ónir veitt­ar til samn­ings­bund­ins við­halds varn­ar­mann­virkja. 

Stærstur hluti fjár­magns­ins fer til almenns rekst­urs Land­helg­is­gæsl­unnar og  Kefla­vík­ur­flug­völls eða 1.519 millj­ónir króna. 217 millj­ónir króna fara í sam­stöðu­að­gerð­ir.

Auglýsing
Í skýrsl­unni er grund­völlur varna Íslands sagður vera aðildin að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og varn­ar­samn­ing­ur­inn við Banda­ríkin frá 1951. Þar er vöxtur útgjalda sagður „helg­ast af vax­andi skuld­bind­ingum sem Ísland hefur tek­ist á hendur innan Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og auk­inni tíma­bund­inni við­veru liðsafla banda­lags­ins á Kefla­vík­ur­flug­velli vegna versn­and­i ­ör­ygg­is­á­stands í Evr­ópu, þ.m.t. á Norð­ur­-Atl­ants­hafi." 

Stjórn­ar­flokkar ósam­mála um varn­ar­mál

Vinstri græn eru and­víg veru Íslands í hern­að­ar­banda­lagi og segir skýrt í stefnu þeirra: „Ekki á að leyfa her­æf­ingar í land­inu eða innan lög­sögu þess. Ísland og íslenska lög­sögu á að frið­lýsa fyrir umferð með kjarn­orku-, sýkla- og efna­vopna í lofti, á láði og leg­i.“

Í stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir hins vegar að aðild Íslands­ að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og varn­ar­samn­ingur Íslands og Banda­ríkj­anna séu „­for­sendur þess að öryggi lands­ins sé trygg­t“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent