Utanríkisráðuneytið hafnar forsíðufrétt Fréttablaðsins um meint áform NATO

Utanríkisráðuneytið segir að forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag sé alröng og hafnar því alfarið að svo mikið sem hugmyndir séu uppi um byggingu varnarmannvirkja í Gunnólfsvík í norðanverðum Finnafirði á Langanesi.

Skjáskot af frétt Fréttablaðsins frá því í morgun.
Skjáskot af frétt Fréttablaðsins frá því í morgun.
Auglýsing

Frétta­blaðið greindi frá því á for­síðu sinni í dag að Atl­ants­hafs­banda­lagið (NATO) hefði fal­ast eftir því að fá að byggja langan við­legu­kant norðan megin í Finna­firði á Langa­nesi og að á „bak við tjöld­in“ væri utan­rík­is­ráðu­neytið í sam­skiptum við sveit­ar­stjórnar Langa­nes­byggðar um þetta efni.

Þessu hafnar utan­rík­is­ráðu­neytið alfarið í yfir­lýs­ingu sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

„Engin áform eða hug­myndir eru uppi um upp­bygg­ingu varn­ar­mann­virkja á því svæði sem þar er til umfjöll­un­ar. Enn síður á sér stað und­ir­bún­ings­vinna eins og haldið er fram í frétt­inni. Engin áform eru um upp­bygg­ingu varn­ar­mann­virkja í Finna­firði og engar beiðn­ir, hvorki form­legar né óform­leg­ar, hafa verið lagðar fram af hálfu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og stað­hæf­ingar um beiðni Atl­ants­hafs­banda­lags­ins eiga sér enga stoð í raun­veru­leik­an­um. Fréttin er því röng,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Segja að ein­falt hefði verið að svara fyr­ir­spurnum

Í frétt Frétta­blaðs­ins sagði að engin svör hafi feng­ist við fyr­ir­spurnum um málið hjá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Ráðu­neytið segir að það telji í ljósi þessa rétt að taka fram að blaða­maður hafði sam­band við fjöl­miðla­full­trúa ráðu­neyt­is­ins, sem staddur var í sum­ar­fríi erlendis og að sá hafi vísað blaða­mann­inum á stað­gengil.

Auglýsing

„Blaða­maður hafði ekki sam­band við stað­gengil eða neinn hjá ráðu­neyt­inu til þess að leita stað­fest­ingar á þeim röngu upp­lýs­ingum sem hann byggði skrif sín á. Er þetta miður þar sem ein­falt hefði verið að koma á fram­færi upp­lýs­ingum og svara fyr­ir­spurnum um mál­ið,“ segir í yfir­lýs­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Í henni segir enn­fremur að á grund­velli varn­ar­á­ætl­ana leggji NATO „mat á þörf fyrir upp­bygg­ingu varn­ar­mann­virkja í banda­lags­ríkj­um“ og að það sé ákvörðun stjórn­valda í hverju ríki „hvort og hvaða varn­ar­mann­virki eru byggð“.

Þetta segir ráðu­neytið einnig gilda um Ísland, „þar sem íslensk stjórn­völd hafa loka­orð um alla varn­ar­tengda upp­bygg­ingu. Auk þess bætir ráðu­neytið því við að sam­ráð um upp­bygg­ingu varn­ar­mann­virkja eig sér „ávallt stað á vett­vangi Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og slíkar ákvarð­anir taka að sjálf­sögðu mið af ástandi heims­mála hverju sinn­i“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent