Bjarg byggir 80 íbúðir á Kirkjusandi

Íbúðirnar eru ætlaðar fyrir tekjulága.

Fasteignir hús
Auglýsing

Bjarg íbúða­fé­lag hyggst byggja 80 íbúðir á Kirkju­sandi.

Íbúð­irnar verða í átta húsum sem Þingvangur hefur tekið að sér að byggja fyrir Bjarg íbúða­fé­lag við Hall­gerð­ar­götu á Kirkju­sandi. Íbúð­irnar verða af ýmsum stærðum og legg­ur Reykja­vík­ur­borg fram lóð­ina sem stofn­fram­lag til Bjargs en ríkið styrkir einnig upp­bygg­ing­una með 18 pró­sent stofn­fram­lagi.

ASK arki­tektar teikn­uðu húsin sem verða byggð úr steypu og timbri. Félags­bú­staðir munu eiga og leigja út 20 pró­sent íbúða í hús­unum í Hall­gerð­ar­götu á móti Bjargi íbúða­fé­lagi.

Auglýsing

„Kirkju­sandur er ákaf­lega vel stað­sett svæði og er úti­vist­ar­gildi svæð­is­ins mikið og gott aðgengi að strand­lengj­unni og Laug­ar­dal. Hall­gerð­ar­gata á teng­ist gömlum og rót­grónum hverfum á Teig­unum og Lækj­un­um. Stutt er í alla verslun og þjón­ustu, t.d.  Laug­ar­dals­laug, Skauta­höll­ina, Grasa­garð­inn, Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garð­inn, Safn Sig­ur­jóns Ólafs­son­ar á Laug­ar­nestanga og Sól­heima­bóka­safn,“ segir í til­kynn­ingu frá Bjargi.

Full­trúar Bjargs og verka­lýðs­fé­lag­anna ásamt Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra og full­trúum frá Þingvangi tóku skóflustung­una í gær en fram­kvæmdir við íbúð­irnar hefj­ast strax.

Bjarg íbúða­fé­lag er með­ 563 íbúðir í bygg­ingu  þar af 499 í Reykja­vík­ og verður flutt inn í fyrstu íbúð­irnar við Móa­veg í sumar en það var fyrsta bygg­ing­ar­fram­kvæmd Bjargs.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent