Viðtöl standa nú yfir fyrir starf forstjóra Isavia en stjórn fyrirtækisins reynir að flýta ráðningu í starfið eins og kostur er.
Þetta kemur fram í svari Guðjóns Helgasonar, upplýsingafulltrúa Isavia, við fyrirspurn Kjarnans. Ekki fengust frekari upplýsingar um hversu margir hefðu verið boðaðir í viðtal eða hvenær ákvörðunar væri að vænta. Isavia á og rekur flugvellina í landinu og er að öllu leyti í eigu íslenska ríkisins.
Björn Óli Hauksson, fyrrverandi forstjóri Isavia, sagði starfi sínu lausu um miðjan apríl síðastliðinn. Skipt var um stjórnarformann í fyrirtækinu í mars á þessu ári þegar Orri Hauksson, forstjóri Símans, tók við af Ingimundi Sigurpálssyni. Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri, og Sveinbjörn Indriðason, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, annast daglegan rekstur félagsins þangað til ráðinn hefur verið nýr forstjóri.
Skuld WOW air og launamál
Isavia hefur verið mikið til umfjöllunar undanfarið, meðal annars vegna vandræða WOW air sem enduðu með gjaldþroti. Isavia hafði veitt WOW air umtalsvert svigrúm vegna greiðslu á lendingargjöldum og voru þær skuldir vel á annan milljarð króna hið minnsta. Vegna þeirra gerði Isavia kröfu um að ein þeirra véla sem WOW air var með á leigu væri alltaf staðsett á Keflavíkurflugvelli. Sú vél hefur síðan verið notuð til að reyna að innheimta skuld WOW air við Isavia. Umburðarlyndi Isavia gagnvart WOW air var harðlega gagnrýnt af ýmsum fyrir að vera andstætt eðlilegum samkeppnissjónarmiðum.
Launamál Björns Óla hafa líka verið umtalsvert til umfjöllunar síðustu misseri. Kjarninn greindi frá því fyrr á þessu ári að heildarlaun Björns Óla hefðu hækkað um 43,3 prósent frá því að ákvörðun launa var færð frá kjararáði árið 2017 til stjórnar fyrirtækisins á ný. Launin hækkuðu úr 1.748.000 krónum á mánuði í nóvember 2017 í 2.504.884 í maí 2018.