Áhugi á að þreyta inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfun við Læknadeild Háskóla Íslands eykst á milli ára en alls er 421 nemandi skráður í prófið sem fram fer dagana 6. og 7. júní næstkomandi. Í fyrra þreyttu 348 manns prófið.
Þetta kemur fram í umfjöllun Háskóla Íslands.
Þá segir að alls muni 323 þreyta inntökupróf í læknisfræði og fjölgi þeim um 40 milli ára. Þá sæki 98 manns um inntöku í sjúkraþjálfun en þeir hafi verið 64 í fyrra. Sama próf er lagt fyrir alla þátttakendur og þeir sem standa sig best á prófinu eiga kost á að hefja nám.
„Fjöldi þeirra sem hefur nám miðast við afkastagetu sjúkrahúsanna við verklega þjálfun nemenda. Í læknisfræði verða nú teknir inn 54 nemendur, sem er fjölgun um fjögur pláss frá því í fyrra, og í sjúkraþjálfun er fjöldinn sá sami og í fyrra, eða 35 nemendur,“ segir í frétt HÍ.